Innlent

Þrjú loftför, tvö slys og tíu slasaðir

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þyrlur gæslunnar koma á Landspítalann með sex slasaða eftir bílslys í Öræfum. Flugvélin flutti svo fjóra, þar af einn úr öðru slysi, á spítalann.
Þyrlur gæslunnar koma á Landspítalann með sex slasaða eftir bílslys í Öræfum. Flugvélin flutti svo fjóra, þar af einn úr öðru slysi, á spítalann. Vísir/vilhelm

Landhelgisgæslan vill hafa flugvél sína, sem gegndi mikilvægu hlutverki þegar alvarlegt umferðarlys varð á Suðurlandi í gær, oftar til taks hér á Íslandi. Tíu manns úr tveimur slysum voru fluttir til Reykjavíkur með þremur loftförum gæslunnar í gær; bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar.

Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi við Öldulón og Fagurhólsmýri um klukkan tvö síðdegis í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir aðgerðir hafa gengið mjög vel; fólkið var flutt til Reykjavíkur með tveimur þyrlum gæslunnar og eftirlitsflugvél.

„Það bættist að vísu einn við því það varð annað umferðarslys seinnipartinn. Þannig að flugvélin flutti fjóra og þyrlurnar sex,“ segir Ásgeir.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Vísir/Vilhelm

Þetta sýni mikilvægi þess að hafa flugvélina einnig til taks, sem of oft sé erlendis.

„Það er svosem ekkert launungarmál að við vildum gjarnan hafa flugvélina heima í ríkari mæli. En auðvitað má ekki gleyma því að vera vélarinnar við landamæraeftirlit erlendis er auðvitað líka afar mikilvægt framlag Íslands við ytri landamæri Evrópu,“ segir Ásgeir.

Þá er það afar fátítt að þrjú loftför gæslunnar séu nýtt í einu og sama útkallinu, að sögn Ásgeirs.

„Þetta gerist í mesta lagi einu sinni á ári. Ég man eftir því að öll fjögur loftförin voru nýtt þegar varð rútuslys, ég held það hafi veirð í lok árs 2018, til þess að flytja slasaða. Þannig að þetta vissulega gerist, en sem betur fer er það ekki oft.“

Spánverji ók bílnum

Oddur Árnason yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir tildrög slyssins til rannsóknar og ekkert fáist uppgefið um þau í bili. Þá hefur hann ekki fengið upplýsingar um líðan fólksins en það var allt með góð lífsmörk við flutning á sjúkrahús í gær.

Erlendir ferðamenn voru í öðrum bílnum, ökumaður þess bíls er Spánverji, og Íslendingar í hinum. Enn á eftir að taka skýrslu af fólkinu en sex voru í öðrum bílnum og þrír í hinum. Oddur segir loftbrú Landhelgisgæslunnar hafi gefist afar vel - en starfsfólki bráðamóttökunnar í Reykjavík hafi þó vissulega brugðið að fá svo stóran hóp til sín í einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×