Lífið

„Auðveldasta já í heimi“

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Páll Reynisson eru trúlofuð.
Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Páll Reynisson eru trúlofuð. Íris Dögg Einarsdóttir

Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Páll Reynisson eru trúlofuð. Fanney greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.

„Auðveldasta já í heimi. Ég get ekki beðið eftir því að giftast þér my love,“ skrifar Fanney undir mynd af demantshring á fingri sér. Þar kemur fram að þau hafi trúlofað sig þann 7. janúar.

Fanney Ingvarsdóttir vakti fyrst athygli þegar hún var krýnd ungfrú Ísland árið 2010. Í dag starfar hún sem markaðsfulltrúi húðvörufyrirtækisins Bioeffect. Þá hefur hún einnig verið áberandi á samfélagsmiðlum. Teitur Páll er viðskiptafræðingur og starfar hjá Landsbankanum.

Fanney og Teitur hafa verið saman frá árinu 2016. Þau eiga saman hina fimm ára gömlu Kolbrúnu Önnu og hinn tveggja ára gamla Reyni Alex.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.