Innlent

Sitja föst eftir skíða­ferð en láta það ekki spilla gleðinni

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá hluta hópsins sem skemmtir sér greinilega vel.
Hér má sjá hluta hópsins sem skemmtir sér greinilega vel. Aðsent

Hópur fjörutíu laganema frá Háskóla Íslands hefur ekki komist frá Sauðárkróki eftir skíðaferð í dag vegna veðurs og færðar. Þau halda nú til í skíðaskála í Tindastóli og segja vel hugsað um sig en hópurinn telur sig geta komist heim á morgun.

Í samtali við fréttastofu segir Katla Ýr Sebastiansdóttir, formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands að þrátt fyrir allt sé hópurinn í góðum gír.

„Það er bara mjög góð stemming, nóg af mat og nóg af bjór, þannig allir eru sáttir,“ segir Katla.

Til stóð að fara heim á hádegi í dag en hópurinn lagði leið sína norður í skíðaferð á föstudag.

Hér má sjá skíðaskálann. Aðsent

Katla segir stjórn nemendafélagsins hafa tekið þá ákvörðun að þau skildu vera á svæðinu í eina nótt í viðbót en ekki sé fært frá Sauðárkróki.

„Spáin er svolítið þannig að við ætlum að leggja af stað snemma í fyrramálið þannig fólk eigi daginn heima á morgun. Vegurinn verður mokaður,“ segir Katla.

Aðspurð hvort hópurinn hafi gert eitthvað sérstakt til þess að nýta tímann segir hún hópinn að miklu leyti hafa lagt frá sér símana og notað tækifærið til þess að tengjast sterkari vinaböndum.

Þá segir hún hópinn hafa fengið frábæra þjónustu frá starfsfólki svæðisins.

„Við erum bara öll ótrúlega sátt og viljum þakka Sigga skíðaverði fyrir, hann er búinn að standa sig eins og hetja að ná í pizzur fyrir okkur og halda öllum glöðum,“ segir Katla.

Hún segir vel hafa verið hugsað um hópinn, ekki hafi allir verið sáttir við að vera fastir fyrst um sinn en það hafi svo sannarlega ræst úr deginum.

Hópurinn skemmti sér vel um helgina.Aðsent




Fleiri fréttir

Sjá meira


×