Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir og mann með öxi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. febrúar 2023 06:15 Lögregla sinnti alls konar útköllum í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt, þar sem menn voru almennt að valda vandræðum. Í sumum tilvikum var hins vegar enga að finna þegar mætt var á staðinn.
Miðsvæðis í borginni var tilkynnt um tvo menn sem höfðu lokað sig inni á salerni hótels en þeir voru á bak og burt þegar lögregla mætti á staðinn. Sömu sögu var að segja um útkall sem lögregla sinnti vegna grunsamlegra mannaferða í garði en enginn fannst við leit. Þá barst lögreglu tilkynning um mann með öxi, sem var sagður vera að valda skemmdum, en í tilkynningu segir aðeins að engin öxi hafi fundist. Málið sé þó í rannsókn. Einn var handtekinn á veitingastað þar sem hann var með ógnandi hegðun, sá var vistaður í fangageymslu þar sem ekki reyndist unnt að ræða við hann. Þá var annar vistaður í fangageymslu vegna ölvunar og ónæðis og enn einum vísað út af bar þar sem hann hafði verið til vandræða. Annars staðar í höfuðborginni barst tilkynning um ungmenni að skemma rútu. Skemmdir eru sagðar hafa verið töluverðar og er málið í rannsókn. Nokkrir voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Lögreglumál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira