Viðskipti innlent

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti

Kristján Már Unnarsson skrifar
Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, í viðtali við fréttastofu síðdegis um loðnuna í Húnaflóa.
Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, í viðtali við fréttastofu síðdegis um loðnuna í Húnaflóa. Arnar Halldórsson

Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.

Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson væri síðustu níu daga búið að þræða miðin út af Vestfjörðum og inn á Húnaflóa.

Leitarferill Árna Friðrikssonar dagana 12. til 21. febrúar.Hafrannsóknastofnun

„Þetta var umtalsvert magn sem var að sjást þarna inni í Húnaflóa,“ segir Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, en loðnan þar er að nálgast hrygningu.

Þar til nánari útreikningar liggja fyrir um magnið ráðlagði stofnunin strax í dag minnst eitthundrað þúsund tonna kvótaaukningu og það er sagt varlega áætlað.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.Einar Árnason

Hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað segist forstjórinn Gunnþór Ingvason hafa fulla trú á því að flotanum takist að veiða viðbótarkvótann. Verðmæti hundrað þúsund tonna aukningar áætlar hann milli átta og tíu milljarða króna. Gunnþór kveðst raunar trúa því að viðbótin verði enn meiri, jafnvel 150 þúsund tonn.

Loðnuflotinn hefur undanfarna daga verið að fylgja loðnugöngu vestur með suðurströndinni að hefðbundnum hrygningarstöðvum. Hafrannsóknastofnun mælist til þess að útgerðir gangi ekki of nærri þeirri göngu heldur snúið sér meira að loðnunni fyrir norðan en hún er einnig að nálgast hrygningu.

Frá loðnuveiðum úti fyrir Dyrhólaey.Björn Steinbekk

„Vð höfum séð hrygningu fyrir norðan. Það er ekki langt síðan það var töluverð hrygning fyrir norðan.

En þetta er auðsjáanlega breytilegt milli ára. Og þetta hefur sérstaklega verið að gerast með hlýnandi loftslagi og hlýrri sjó,“ segir Guðmundur, sem vonast til að fyrir helgi geti endanleg ráðgjöf um loðnukvóta vertíðarinnar legið fyrir.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Reikna með um hundrað þúsund tonna hækkun á loðnuaflanum

Hafrannsóknarstofnun boðar hækkun á tillögum um hámarksafla á loðnuvertíðinni eftir að umtalsvert magn af hrygningarloðnu mældist norður af Húnaflóa á dögunum. Gera megi ráð fyrir yfir hundrað þúsund tonna hækkun, varlega áætlað. Sjómenn eru hvattir til loðnuveiða á þeim slóðum frekar en öðrum.

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar

Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“

Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum.

Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×