Síldarvinnslan
1 2 3 … 3 ›
Áfram engar loðnuveiðar Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024/2025. Viðskipti innlent 12.10.2024 09:09
Fá tíu ár til að selja hlut sinn í grænlenskum útgerðum Grænlenska heimastjórnin samþykkti nýlega ný fiskveiðistjórnarlög sem munu knýja erlenda aðila sem eiga í þarlendum sjávarútvegsfyrirtækjum til að selja hlut sinn á næstu tíu árum. Þrjú íslensk félög eiga þriðjungshlut í útgerðum í Grænlandi, þar af tvö útgerðarfélög sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Innherji 9.7.2024 12:43
Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Stjórn Síldarvinnslunnar hefur samþykkt beiðni Samherja um að kaup félagsins á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf. gangi til baka. Viðskipti innlent 3.6.2024 08:27
Loðnubrestur hefur mikil áhrif en Síldarvinnslan er „hvergi bangin“ Loðnubrestur vó þungt í rekstri Síldarvinnslunnar á fyrsta ársfjórðungi eftir nokkur góð ár í veiðum á þeirri fisktegund. Á sama tíma hefur ríkt óvissa með rekstur bolfiskeiningar útgerðarinnar í Grindavík sem sömuleiðis dregur úr afkomu samanborið við fyrra ár. Markaðsvirði Síldarvinnslunnar hefur lækkað um nærri þrjú prósent í Kauphöllinni það sem af er degi. Innherji 24.5.2024 14:45
Verðmetur Síldarvinnsluna yfir markaðsvirði í fyrsta skipti í 30 mánuði Í fyrsta skipti í þrjátíu mánuði er verðmatsgengi hlutabréfagreinanda fyrir ofan markaðsgengi Síldarvinnslunnar. „Hvort það endurspegli stöðuna á markaðnum eða hvort Jakobsson Capital sé mun bjartsýnna á slorið en markaðurinn er erfitt að segja. Óvissan er mikil en sveiflur markaðarins eru oft eins og sveiflur í loðnugöngum,“ segir í nýju verðmati en gert ráð fyrir því að rekstrarhagnaður útgerðarinnar verði orðinn hærri 2026 en hann var „metárið 2023.“ Innherji 13.5.2024 12:43
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. Viðskipti innlent 21.3.2024 22:22
Sakar SKE um „íhlutun íhlutunnar vegna“ en sé ekki að gæta hagsmuna almennings Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, gagnrýnir harðlega starfshætti Samkeppniseftirlitsins, sem rannsakar núna eignatengsl félagsins og Samherja, og spyr hvaða hagsmuni stofnunin er að verja hér á landi og hvaða samkeppni hún telur sig standa vörð um. Hann segir eftirlitið gera sjávarútvegsfélögum erfitt um vik á erlendum mörkuðum í samkeppni við risavaxna keppinauta samhliða því að íslensku fyrirtækin verða alltaf hlutfallslega minni og minni. Innherji 21.3.2024 15:22
Bjarni Ólafsson AK í slipp á Akureyri Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK hélt áleiðis til Akureyrar frá Neskaupsstað í morgun. Skipið hefur legið við höfn Neskaupsstaðar síðastliðið ár en fer nú í slipp á Akureyri. Skipið var síðast notað á loðnuvertíðinni 2023. Innlent 20.3.2024 19:56
Loðnan við Vestfirði ekki nægilega mikil Loðnan sem fannst undan Patreksfirði í gær reyndist ekki vera í nægilegu magni til að unnt sé að heimila veiðar. Von um loðnuvertíð er því orðin veik og blasir loðnubrestur við þennan veturinn. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funda með fulltrúum útgerðarinnar í dag um stöðuna. Viðskipti innlent 29.2.2024 11:55
Skoða enn hvort Samherji og Síldarvinnslan séu sama fyrirtækið Samkeppniseftirlitið hefur hafið athugun á því hvort samband Samherja og Síldarvinnslunnar sé svo náið að félögin jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta. Viðskipti innlent 28.2.2024 11:30
Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun. Viðskipti innlent 21.2.2024 20:40
Tóku þátt í leit að tveimur skipverjum en án árangurs Að morgni þriðjudagsins 7. febrúar síðastliðnum fékk færeyska línuskipið Kambur á sig brotsjó suður af Suðurey í Færeyjum og lagðist á hliðina. Á skipinu var 16 manna áhöfn, 14 komust upp á skipið þar sem það flaut á hliðinni og var þeim bjargað um borð í þyrlu. Tveggja var hins vegar saknað. Innlent 21.2.2024 16:21
Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar. Viðskipti innlent 14.2.2024 21:31
Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar. Viðskipti innlent 12.2.2024 23:23
Ráðinn öryggisstjóri Síldarvinnslunnar Páll Freysteinsson hefur verið ráðinn nýr öryggisstjóri Síldarvinnslunnar og hóf hann störf fyrr í dag. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:21
Tugmilljarða verðmæti í húfi og halda í vonina um loðnuvertíð Ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækja halda enn í vonina um loðnuvertíð í vetur þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi tilkynnt í dag að enginn loðnukvóti verði gefinn út eftir nýafstaðna loðnuleit. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið. Viðskipti innlent 24.1.2024 19:48
Telja fasteignir og lausafé Vísis ehf. vel tryggt Staðan á Reykjanesskaga hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðarinnar Vísis en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast. Stjórnendur vinna við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála. Stjórnendur telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt. Viðskipti innlent 13.11.2023 09:51
Síldarvinnslan betur í stakk búin fyrir loðnubrest en drekkri horfur eru í útgerð Engin loðnuúthlutun hefði haft mun verri afleiðingar fyrir Síldarvinnsluna fyrir tveimur til þremur árum. Útgerðin hefur dreift áhættu í rekstrinum með því að auka bolfiskveiðar, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 20.10.2023 15:27
Sigurður Álfgeir frá Deloitte til Síldarvinnslunnar Síldarvinnslan hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, endurskoðanda, til starfa hjá fyrirtækinu. Sigurður verður firmaður reikningshalds hjá Síldarvinnslusamstæðunni og kemur þaðan frá Deloitte. Viðskipti innlent 16.10.2023 12:38
Kaupir helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf. Samherji og Síldarvinnslan hafa gengið frá kaupum þess síðarnefnda á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári. Viðskipti innlent 26.9.2023 10:11
Hershöfðingjasonur nýr aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar Andrew Wissler hefur verið ráðinn aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar. Andrew er sonur bandarísks hershöfðingja en leiðin lá til Íslands þökk sé ástinni sem Andrew fann við hagfræðinám í St. Paul árið 2005. Viðskipti innlent 25.5.2023 07:00
Orkuskortur kom þungt niður á kolefnisbókhaldi Síldarvinnslunnar Ef fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar á Neskaupstað hefðu haft ótakmarkað aðgengi að rafmagni hefði verið hægt að koma í veg fyrir losun 14 þúsund tonna af kolefnisígildum á síðasta ári. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir vonbrigði að orkubúskapur landsins sé ekki í betri stöðu en raun ber vitni. Innherji 17.5.2023 08:46
Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 22.2.2023 22:45
Mest af loðnu fyrir norðan Rannsóknaskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, er nú við loðnuleit. Skipið lagði frá Hafnafirði í síðustu viku og hélt suður fyrir land. Fyrir um viku síðan lagði skipið lykkju á leið sína norðvestur af landinu og hélt síðan til vesturs. Forstjóri Síldarvinslunnar segir ástæðu til bjartýni. Innherji 20.1.2023 15:04
Metur Síldarvinnsluna fimmtungi undir markaðsgengi Í nýjasta verðmati Jakobsson Capital á Síldarvinnslunni er verðmat félagsins hækkað, en er engu að síður ríflega 20 prósent undir markaðsgengi félagsins. Greinandi Jakobsson Capital gagnrýnir Síldarvinnsluna fyrir skort á upplýsingagjöf í tengslum við yfirtökuna á Vísi í Grindavík. Innherji 9.1.2023 15:00
Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól. Viðskipti innlent 13.12.2022 22:24
Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar. Viðskipti innlent 12.12.2022 20:22
Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina. Viðskipti innlent 12.12.2022 12:20
Komandi loðnuvertíð gæti skilað allt að 30 milljörðum í þjóðarbúið Þrátt fyrir að loðnukvóti komandi vertíðar stefni í að verða um fjórðungur af síðustu vertíð í lönduðum tonnum mælt, dregst vænt útflutningsverðmæti loðnuafurða aðeins saman um helming. Þetta kom fram í máli Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar í kynningu á uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Innherji 25.11.2022 12:49
Vísir formlega hluti af samstæðu Síldarvinnslunnar í desember Vísir hf. í Grindavík og dótturfélög verða formlega hluti af samstæðu Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað frá og með 1. desember næstkomandi. Þetta kemur fram í uppgjöri Síldarvinnslunnar fyrir þriðja ársfjórðung sem var birt rétt í þessu. Innherji 24.11.2022 17:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent