Rekinn eftir tapið stóra í Reykjavík Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2023 12:30 Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val léku lið PAUC grátt og nú hefur þjálfari liðsins verið rekinn. vísir/Diego Forráðamenn franska félagsins PAUC, sem Kristján Örn Kristjánsson leikur með, hafa ákveðið að losa sig við þjálfarann Thierry Anti. Tapið stóra gegn Valsmönnum á Hlíðarenda hafði sitt að segja.
PAUC varð að sætta sig við að falla úr leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en þetta varð ljóst á þriðjudagskvöld, á sama tíma og Valsmenn tryggðu sér 3. sæti riðilsins eftir sigur gegn Ystad í Svíþjóð. PAUC vann reyndar Benidorm á þriðjudaginn af öryggi á heimavelli en segja má að 40-31 tapið gegn Val í síðustu viku hafi reynst banabiti liðsins í Evrópudeildinni, og þar með einnig banabiti Antis. Í yfirlýsingu frá PAUC segir að ákvörðunin um að Anti víki sé sameiginleg og að hann stýri liðinu í einum leik til viðbótar, gegn Nantes í frönsku deildinni á laugardag. Franskir miðlar segja þó að ákvörðunin um að Anti fari sé komin frá forráðamönnum PAUC. PAUC náði sínum best árangri undir stjórn Anti í fyrra þegar liðið endaði óvænt í 3. sæti frönsku deildarinnar, með Kristján Örn í frábæru formi en hann var valinn í úrvalslið ársins. Nú er liðið í 7. sæti frönsku deildarinnar með 17 stig eftir 18 leiki, eða 13 stigum frá 3. sætinu sem liðið náði í fyrra.
Evrópudeild karla í handbolta Franski handboltinn Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn „Ég get ekki beðið“ Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum Handbolti Fleiri fréttir Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Sjá meira