Innlent

Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur

Kristján Már Unnarsson skrifar
Björgunarsveitarmenn í Neskaupstað ræða við Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra Fjarðabyggðar.
Björgunarsveitarmenn í Neskaupstað ræða við Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Sigurjón Ólason

Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað.

Fjallað var um stöðuna í fréttum Stöðvar 2 en í morgun breytti Veðurstofan gulri viðvörun yfir í appelsínugula. Viðvörunin tók gildi klukkan nítján í kvöld. Hún nær í raun yfir alla Austfirði, milli Glettings og Þvottárskriða, og byggðir allt norður frá Seyðisfirði og suður fyrir Djúpavog. Snjóflóðahætta er talin á öllu svæðinu, mest þó á miðhluta Austfjarða.

Björgunarsveitarmenn á spjalli við bæjarstjórann. Fyrir aftan má sjá lokunarpóst við götuna Starmýri og einnig skemmda bíla eftir snjóflóðið sem féll á mánudag.Sigurjón Ólason

Annað kort frá Veðurstofunni sýnir áætlaða uppsafnaða úrkomu fram til klukkan átján á föstudag. Þar sést að þetta mikla úrkomubelti nær suður í Öræfasveit. Þetta byrjar sem snjókoma en breytist svo í slyddu og loks í rigningu eftir því sem hlýnar og þá verður hætta á krapaflóðum.

Kortið sýnir áætlaða uppsafnaða úrkomu fram til klukkan átján á föstudag.Veðurstofa Íslands

Á færðarkorti Vegagerðarinnar síðdegis yfir færðina á þjóðvegum Austurlands mátti sjá að helstu leiðir voru enn opnar. Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar lokaðist að vísu um tíma í morgun en búast má við að færðin spillist strax í kvöld því varað er við miklum samgöngutruflunum.

Norðfjarðargöng voru lokuð í hálfan annan sólarhring í gær og í fyrradag vegna snjóflóðahættu Norðfjarðarmegin í Fannardal. Sigurjón Ólason

Þegar séð var að snjóflóðahætta myndi aukast með versnandi veðurspá sendu almannavarnir enn meiri liðsauka til Austurlands í dag sem bættist við þann hóp sem sendur var strax á mánudag.

Lið frá björgunarsveitum, lögreglu, slökkviliði og Rauða krossinum flaug þá austur en einnig voru hundar með í för, þjálfaðir til leitar í snjóflóðum. Landhelgisgæslan sendi einnig þyrlu austur sem og varðskip. Björgunarsveitir á Norðurlandi lögðu einnig lið og sendu snjóbíla og mannskap.

Biðsalur farþega á Egilsstaðaflugvelli var tekinn undir björgunarsveitarfólk og leitarhunda.Sigurjón Ólason

Hjá lögreglunni á Austurlandi áætlaði Hjalti Bergmar Axelsson, aðalvarðstjóri á Egilsstöðum, nú síðdegis að yfir tvöhundruð manns væru núna þar í viðbragðsstöðu. Þar af væru um fimmtíu manns af Austurlandi en yfir 150 manns úr öðrum landshlutum.

Frá Norðfirði. Bíll björgunarsveitarinnar Gerpis.Sigurjón Ólason

Það eru þó vettvangsstjórnir heimamanna, á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Eskifirði og ekki síst á Norðfirði, sem bera hitann og þungann af þeim mikla viðbúnaði sem núna er haldið úti.

Snjóflóðið sem féll á nokkur hús í Neskaupstað í fyrradag minnti menn þar óþyrmilega á snjóflóðin 1974 sem kostuðu tólf manns lífið. Bílarnir sem lágu þar á hvolfi, um tugur talsins, vitna um þann ógnarkraft sem fylgir snjóflóði og það sem olli mestum skaða á mánudag telst þó lítið.

Við hús björgunarsveitarinnar Gerpis í Neskaupstað.Sigurjón Ólason

„Það var voða lítið magn í því en hraðinn hefur verið óskaplegur og farið illa með þetta,“ sagði Tómas Zoëga, snjóflóðaeftirlitsmaður í Neskaupstað, þegar hann sýndi okkur ummerki snjóflóðsins sem féll í fyrradag.

„Það hefur verið mikill asi á þessu en það fór nú flóð hér úr fleiri giljum.“

Tómas Zoëga er snjóflóðaeftirlitsmaður á Norðfirði.Sigurjón Ólason

Eitt þeirra hafi fallið á varnargarð.

„Og sannar ágæti garðanna. Það kemur á garðinn og fer alveg upp á topp á því. Það hefði sennilega farið niður á hús ef það hefði ekki verið stoppað,“ sagði Tómas snjóflótaeftirlitsmaður.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Hér má sjá beina útsendingu Stöðvar 2 frá Norðfirði í gær:


Tengdar fréttir

Senda liðsauka austur áður en veðrið skellur á

Tuttugu björgunarsveitarmenn verða sendir með flugi til Austfjarða í dag til viðbótar við þá tugi sem þar eru þegar að störfum. Snjóflóðahætta á svæðinu hefur aukist með versnandi veðurspá. Mikil snjókoma er í kortunum í kvöld og úrkomuviðvörun á svæðinu orðin appelsínugul.

Fjórði garðurinn hefði af­stýrt hörmungunum

Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær. 

„Fólkinu líður eðli­lega illa, þetta er mikið á­fall“

Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×