Dómari afturkallar leyfi FDA fyrir þungunarrofslyfi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. apríl 2023 08:28 Víðast hvar er mifepristone annað af tveimur lyfjum sem notuð eru saman til að framkvæma þungunarrof. AP&Allen G. Breed Dómari í Texas í Bandaríkjunum hefur ógilt samþykki Matvæla- og lyfjastofnunar (FDA) Bandaríkjanna um markaðsleyfi fyrir þungunarrofslyfið mifepristone. Um er að ræða fyrsta skiptið sem dómstóll hlutast til um leyfisveitingu stofnunarinnar.
Dómarinn Matthew J. Kacsmaryk, sem skipaður var í embætti af Donald Trump, er þekktur andstæðingur þungunarrofs og fór ekki leynt með það í dómsorðinu. Talaði hann um þungunarrof með „efnum“ og um fóstur sem „ófædd börn“ og „ófæddar manneskjur“. „Margar konur upplifa einnig verulegt sálrænt áfall og áfallastreitu vegna mikilla blæðinga og eftir að hafa séð leifar barnanna sem hefur verið eytt,“ sagði dómarinn. Þá komst hann að þeirri niðurstöðu að FDA hefði brotið gegn lögbundnum skyldum sínum með því að taka ekki tillit til mögulegra aukaverkana og hunsað rannsóknir hvað það varðaði. Hann sagði einnig vísbendingar uppi um að stofnunin hefði sætt verulegum pólitískum þrýstingi. Sækjandinn í málinu var hópur lækna og samtaka sem sögðu mifepristone ógn við heilsu stúlkna og kvenna. Flestir sérfræðingar eru hins vegar á einu máli um að lyfið sé öruggt, enda í hópi fárra lyfja sem hafa verið undir sérstöku eftirlit hjá FDA og eru reglulega tekin til skoðunar. Kacsmaryk frestaði gildistöku ákvörðunar sinnar um sjö daga, til að gefa dómsmálaráðuneytinu og FDA tíma til að áfrýja til æðra dómstigs. Á sama tíma og dómur féll í Texas féll annar dómur í Washington þar sem komist var að öndverðri niðurstöðu; að FDA mætti ekki takmarka aðgengi að lyfinu með neinum hætti. Vegna þessa þykja allar líkur á því að málið verði tekið fyrir af hæstarétti. Mifepristone er yfirleitt tekin ásamt öðru lyfi, misoprostol, en ef aðgengi að fyrrnefnda lyfinu verður takmarkað verður enn hægt að framkvæma þungunarrof með því síðarnefnda. Það þykir hins vegar öruggara að taka bæði lyfin, þar sem misoprostol eitt og sér getur haft meiri aukaverkanir. Joe Biden Bandaríkjaforseti sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar dómsins, þar sem hann vakti meðal annars athygli á því að ef dómurinn yrði látinn standa myndi það þýða að engar ákvarðanir FDA væru óhultar frá hugmyndafræðilegum og pólitískum árásum. Today, a federal district judge in Texas ruled that a prescription medication available for over 22 years, approved by the FDA, and used safely by millions of women should no longer be approved in the U.S. Here's why this matters. And how my Administration is going to fight it.— President Biden (@POTUS) April 8, 2023
Bandaríkin Þungunarrof Mannréttindi Heilbrigðismál Lyf Tengdar fréttir Konur geta nú fengið „þungunarrofspilluna“ senda heim Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur heimilað heimsendingu lyfs sem stuðla að þungunarrofi. Konur hafa á þessu ári getað fengið lyfið send heim vegna kórónuveirufaraldursins en undanþágan hefur nú verið gerð varanleg. 17. desember 2021 06:52 Hæstiréttur hyggst snúa niðurstöðunni í Roe gegn Wade Það stefnir í öldu mótmæla í Bandaríkjunum eftir að Politico greindi frá því að hæstiréttur landsins hyggst snúa dómnum í máli Roe gegn Wade. Í umræddu máli komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að réttur kvenna til að gangast undir þungunarrof ætti stoð í stjórnarskrá landsins en íhaldsmenn hafa barist fyrir því í áratugi að fá dómnum hnekkt. 3. maí 2022 06:53 Hæstiréttur skikkar konur til að mæta á staðinn til að sækja þungunarrofslyf Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær að skikka konur aftur til að mæta sjálfar á heilbrigðisstofnun eða í lyfjaverslun til að fá afhent lyf sem notað er til að framkvæma þungunarrof. Alríkisdómari hafði fellt regluna úr gildi vegna Covid-19 faraldursins og taldi yfirvöldum ekki stætt á því að krefjast þess að konur hættu heilsu sinni til að eiga kost á þungunarrofi. 13. janúar 2021 23:03 Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira
Konur geta nú fengið „þungunarrofspilluna“ senda heim Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur heimilað heimsendingu lyfs sem stuðla að þungunarrofi. Konur hafa á þessu ári getað fengið lyfið send heim vegna kórónuveirufaraldursins en undanþágan hefur nú verið gerð varanleg. 17. desember 2021 06:52
Hæstiréttur hyggst snúa niðurstöðunni í Roe gegn Wade Það stefnir í öldu mótmæla í Bandaríkjunum eftir að Politico greindi frá því að hæstiréttur landsins hyggst snúa dómnum í máli Roe gegn Wade. Í umræddu máli komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að réttur kvenna til að gangast undir þungunarrof ætti stoð í stjórnarskrá landsins en íhaldsmenn hafa barist fyrir því í áratugi að fá dómnum hnekkt. 3. maí 2022 06:53
Hæstiréttur skikkar konur til að mæta á staðinn til að sækja þungunarrofslyf Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær að skikka konur aftur til að mæta sjálfar á heilbrigðisstofnun eða í lyfjaverslun til að fá afhent lyf sem notað er til að framkvæma þungunarrof. Alríkisdómari hafði fellt regluna úr gildi vegna Covid-19 faraldursins og taldi yfirvöldum ekki stætt á því að krefjast þess að konur hættu heilsu sinni til að eiga kost á þungunarrofi. 13. janúar 2021 23:03