Innlent

Hafna alfarið kröfum um afturvirkni

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur kjarasviðs hjá SÍS segir sambandið hafna kröfum BSRB.
Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur kjarasviðs hjá SÍS segir sambandið hafna kröfum BSRB. Vísir/Sigurjón

Starfsemi frístundaheimila og leikskóla í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur skerðist og gæti jafnvel lamast samþykki félagsmenn BSRB boðaðar verkfallsaðgerðir. Samband íslenskra sveitarfélaga hafnar alfarið kröfum BSRB um afturvirkni. 

Atkvæðagreiðslan um verkfallið hófst í hádeginu í dag en samkvæmt verkfallsboðuninni hefjast aðgerðir 15. og 16. maí og munu þá um 1500 manns leggja niður störf á frístundaheimilum, leikskólum og grunnskólum í fjórum Sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur. Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Kópavogi.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að Samband íslenskra sveitarfélaga stefndi beinlínis á mismunun.

Þessu hafnaði SÍS í yfirlýsingu sem send var seinna um daginn og vísaði sambandið ummælunum á bug.

Sonja segir kröfur félagsins sanngjarnar. Einungis sé verið að jafna kjör fólks í sambærilegum störfum með því að nýr kjarasamningur sé afturvirkur frá 1. janúar. Fyrri samningi lauk þann 31. mars síðastliðin.

„Það er 10% verðbólga þannig að það munar mjög mikið um allar hækkanir. Okkar fólk hefur beðið lengi og þess vegna vorum við að gera hóflegar kröfur og horfa til skammtímasamnings.

„Þau hafa einfaldlega vísað til þess að það séu mismunandi kjarasamningstímabil og vilja ekki horfast í augu við þá ábyrgð sem er skýr samkvæmt lögum og dómaframkvæmd um að það megi ekki mismuna fólki í sömu eða sambærilegum störfum í launum.“

Sonja segir kröfur félagsins hógværar í ljósi aðstæðna. Vísir/Sigurjón

Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur kjarasviðs hjá SÍS segir verkfallsboðunina vonbrigði.

„Að sjálfsögðu eru það vonbrigði en á sama tíma ekki óvænt, því krafan sem þau komu fram með er óásættanleg og henni hefur verið alfarið hafnað.

Málið sé alveg skýrt, samningur taki við af samningi, afturvirkni sé ekki í boði.

„Menn bera ábyrgð á þeim samningum sem þeir gera. Þá ábyrgð hefur Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin sjálf axlað og efnt að fullu. Við bara förum fram á það að forysta BSRB beri ábyrgð á þeim samningum sem þau gera.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×