Fótbolti

Pep Guar­diola í hóp með Sir Alex Fergu­son og Car­lo Ancelotti

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Pep í leiknum gegn lærisveinum Ancelotti.
Pep í leiknum gegn lærisveinum Ancelotti. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Sigur Manchester City á Real Madríd í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kom Pep Guardiola. þjálfara City, í einkar fámennan hóp.

Lærisveinar Guardiola fóru illa með lærisveina Carlo Ancelotti á Etihad-vellinum í Manchester. Eftir fyrri leik liðanna í Madríd var staðan í einvíginu jöfn 1-1 en heimamenn fóru einfaldlega á kostum í gær.

Sigurinn var sá 100. hjá Guardiola í Meistaradeildinni sem þýðir að hann er kominn í hóp með Sir Alex Ferguson og Ancelotti. 

Allir þrír hafa stýrt liðum sínum til sigurs í 100 leikjum í deild þeirra bestu. Gæti Guardiola gert gott betur þegar Man City mætir Inter í úrslitum í júní. Yrði það hans fyrsti sigur í Meistaradeildinni síðan 2011 þegar hann þjálfaði Barcelona.

Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu hefst kl. 10.00 þann 10. júní næstkomandi og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×