Viðskipti erlent

ESB sektar Meta um 183 milljarða króna

Atli Ísleifsson skrifar
Mark Zuckerberg er forstjóri Meta.
Mark Zuckerberg er forstjóri Meta. Getty

Evrópusambandið hefur sektað Meta, móðurfélag Facebook, um 1,3 milljarða bandaríkjadala, um 183 milljarða króna, fyrir að hafa sent persónuupplýsingar evrópskra notenda til Bandaríkjanna.

Wall Street Journal segir frá þessu og að Evrópusambandið muni greina opinberlega frá þessu síðar í dag.

Fram kemur að vegna ákvörðunarinnar komi aukinn þrýstingur á bandarísk stjórnvöld að ganga frá samningi við ESB um sveignanlegri persónverndarreglur sem myndu heimila slíkan flutning og nú er verið að sekta Meta fyrir.

Höfuðstöðvar Meta innan EES eru staðsettar á Írlandi og hefur írska persónuverndarstofnunin forystueftirlitsyfirvald yfir Meta. Í frétt WSJ segir að stofnunin meti það sem svo að Meta hafi um árabil hýst persónuverndarupplýsingar um evrópska Facebook-notendur á vefþjónum í Bandaríkjunum með ólöglegum hætti. Vill stofnunin meina að bandarísk leyniþjónusta gæti þannig komist yfir gögnin.

Evrópusambandið hefur aldrei áður sektað tæknirisa um svo háa upphæð, en ESB sektaði Amazon um 806 milljónir bandaríkjadala árið 2021 vegna brota tengdum auglýsingastarfsemi Amazon.

Auk sektarinnar segir að ESB hafi fyrirskipað Meta að stöðva slíkar gagnasendingar og eyða öllum þeim gögnum sem þegar hafi verið send innan sex mánaða. Meta gæti þó sloppið við slíkt, náist samningar milli Evrópusambandsins og bandarískra stjórnvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×