Viðskipti innlent

Öll fé­lög hækkað eftir Al­vot­ech vendingar

Eiður Þór Árnason skrifar
Mikil hreyfing hefur verið á gengi bréfa í Kauphöllinni síðustu daga. 
Mikil hreyfing hefur verið á gengi bréfa í Kauphöllinni síðustu daga.  Vísir/vilhelm

Gengi allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur hækkað það sem af er degi eftir miklar lækkanir í gær. Líftæknifyrirtækið Alvotech er hástökkvari dagsins með 14,30 prósent hækkun en næst á eftir koma Sýn með 6,67 prósenta hækkun og Skel með 6,09 prósent. Þá hefur velta markaðarins verið umfram meðaltal mánaðarins bæði í dag og í gær.

Sigurður Óli Sigurðarson, hlutabréfagreinandi hjá Landsbankanum segir í grunninn engan einn atburð orsaka þær hækkanir sem hafi sést á markaðinum í dag. Mikil lækkun hafi verið í Kauphöllinni í gær í tengslum við tilkynningu Alvotech þess efnis að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hyggist ekki afgreiða umsókn fyrirtækisins um markaðsleyfi fyrir AVT02, hliðstæðulyf Humira, að svo stöddu. Alvotech hafi svo dregið önnur félög í Kauphöllinni niður með sér sem lækkuðu sömuleiðis í gær.

Staðan í Kauphöllinni á þriðja tímanum í dag.Keldan

„Mikil eftirvænting var eftir tilkynningunni og það mætti segja að ákveðinni ósvissu var eytt á sama tíma en ljóst var að virði hlutabréfa [Alvotech] myndi hreyfast með henni. Að sama skapi hafa fréttir af fjármögnun [Alvotech] verið jákvæðar eftir því sem leið á daginn í gær og í morgun sem virðist hafa aukið trú fjárfesta á félaginu aftur sem aftur á móti hefur hjálpað markaðinum upp á við,“ bætir Sigurður við.

„Velta markaðarins í gær og í dag var einnig umfram meðaltal mánaðarins en horfa þarf til þess að það eru alltaf kaupendur og seljendur í öllum tilfellum á hlutabréfamarkaði. Eitthvað af því fjármagni sem fór út af markaðinum í gæti því verið að koma aftur inn í dag,“ segir Sigurður jafnframt um þróunina í Kauphöllinni.

Leggur til fé inn í Alvotech til að styðja við reksturinn

Fram hefur komið að Alvotech þurfi að mæta auknum kostnaði vegna fyrirséðra tafa á markaðssetningu AVT02 í Bandaríkjunum eftir niðurstöðu Matvæla- og lyfjastofnunarinnar.

ATP Holdings ehf., dótturfélag Aztiq sem er stærsti hluthafi Alvotech, hyggst leggja fram allt að 13.600 milljónir króna (eða jafnvirði 100 milljóna dala) til að standa straum af kostnaði við rannsóknar- og þróunarverkefni Alvotech á næstu mánuðum. Fjárfestingafélagið Aztiq er í eigu Róberts Wessmann.

Innherji greindi frá því í dag að Aztiq sé að klára sölu á um helmingi af tæplega tuttugu prósenta eignarhlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan. Áætla má að félagið muni fá um 250 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut við söluna. 

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Fjár­festinga­fé­lag Róberts að selja í Lotus fyrir meira en 30 milljarða

Fjárfestingafélagið Aztiq, aðaleigandi Alvotech og stýrt af Róberti Wessman, er að klára sölu á um helmingi af tæplega tuttugu prósenta eignarhlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan. Áætla má að félagið muni fá um 250 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut við söluna en Róbert hefur sagt að Aztiq muni leggja Alvotech til frekari fjármuni til að styðja við reksturinn vegna tafa á markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð íslenska líftæknifélagsins hefur rokið upp um meira en tíu prósent í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×