Viðskipti innlent

Hátt í tuttugu milljónir hafa tapast í kortasvikamálum í júlí

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum.
Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum.

Í júlí hafa 85 svikamál komið inn á borð Landsbankans og þar af 28 mál tengd flutningsfyrirtækjum. Mikil aukning hefur verið á slíkum svikamálum í sumar.

Brynja María Ólafsdóttir sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans segir um milljónatjón að ræða en bankinn metur að um 19,4 milljónir króna hafi tapast í mánuðinum í kortasvikamálum.

„Bara í þessari viku eru skráð 39 mál og þar af eru 15 mál tengd flutningsfyrirtækjum,“ segir Brynja í samtali við fréttastofu. Algengt sé að viðskiptavinir fái SMS frá flutningsfyrirtækjum þar sem segir að von sé á pakkasendinu. Viðskiptavinur er beðinn um að gefa upp kortaupplýsingar til að greiða fyrir sendingargjöld.

„Við þessa aðgerð geta svikararnir framkvæmt greiðslur á kortunum. Nýjasta aðferðin er að fá einstaklinga til að samþykkja greiðsluna í tengslum við flutninginn. Þegar einstaklingar samþykkja greiðsluna, eða halda að þeir séu að samþykkja greiðslu, eru þeir að samþykkja nýtt lífkenni inni í netbanka. Það gefur svikaranum þá svikaranum fullan aðgang að netbanka einstaklings.“

Dæmi um 2,2 milljóna færslu

Flestir hafi þá samband við bankann til að loka kortinu. 

„En þá er svikarinn kominn með jafn mikinn aðgang að netbankanum og einstaklingurinn og getur þá enn náð fjármunum út,“ segir Brynja.

Hún hvetur fólk til að hafa varann á.

„Það er svo gríðarlega mikilvægt að fólk lesi skilaboðin sem koma á símann þegar við erum að samþykkja greiðslu, því um leið og maður er búinn að samþykkja greiðsluna er hún óendurkræfanleg og ekki hægt að sækja um endurgreiðslu af því að það er búið að samþykkja greiðsluna með réttum hætti.“

Dæmi séu um að fólk samþykki grieðslu upp á 3000 evrur en haldi að um 3000 króna greiðslu sé að ræða. Að sögn Brynju er dæmi um að einstaklingur hafi tapað um 2,2 milljónum króna í einni færslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×