Erlent

Vann einn og hálfan milljarð Banda­ríkja­dala í lottói

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Einhver verulega heppinn einstaklingur keypti vinningsmiðann í Publix-verslun í Flórída.
Einhver verulega heppinn einstaklingur keypti vinningsmiðann í Publix-verslun í Flórída. AP/Mike Stewart

Maður sem keypti lottómiða í Flórída hefur unnið rúmlega einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í Mega Millions-lottóinu. Vinningurinn er sá stærsti í sögu lottósins og sá þriðji stærsti í sögu bandarísks lottós.

Vinningstölurnar voru 13, 19, 20, 32, 33 og var Mega-gullboltinn númer 14.

Vinningshafinn sem keypti miðann í Publix-verslun í Neptune Beach í Flórída getur valið á milli þess að fá 1,58 milljarð Bandaríkjadala (sem jafngildir tæplega 208 milljörðum íslenskra króna) greiddan í árlegum greiðslum næstu þrjátíu árin eða fengið eingreiðslu upp á 783 milljónir Bandaríkjadala (um 100 milljarðar íslenskra króna).

Vinningurinn er sá stærsti í sögu Mega Millions-lottósins, aðeins stærri en 1,537 milljarða vinningur sem vannst í Suður-Karólínu árið 2018.

Þá er vinningurinn sá þriðji stærsti í sögu bandarísks lofts. Kaliforníubúinn Edwin Castro vann þann stærsta síðastliðinn nóvember þegar hann vann tvo milljarða Bandaríkjadala í Powerball-lottóinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×