Erlent

Spænskur á­hrifa­valdur á dauða­dóm yfir höfði sér

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Daniel Sancho hefur viðurkennt að hafa myrt og bútað niður ástmann sinn Edwin Arrieto. Hann á dauðadóm yfir höfði sér.
Daniel Sancho hefur viðurkennt að hafa myrt og bútað niður ástmann sinn Edwin Arrieto. Hann á dauðadóm yfir höfði sér. REUTERS

Spænskur karlmaður um þrítugt á yfir höfði sér dauðadóm í Tælandi fyrir að hafa myrt kólumbískan ástmann sinn, bútað hann í sundur og dreift líkamshlutum hans á sorphauga og í sjóinn.

Skipulagði morðið út í æsar

Daniel Sancho fór inn í byggingarvöruverslun að kvöldi 1. ágúst og keypti sér hnífa, hanska og plastrúllu. Hann fór síðan á stefnumót við kærastann sinn, Edwin Arrieta, 44 ára skurðlækni frá Kólumbíu, en þeir höfðu verið saman í um það bil ár.

Daginn eftir hafði Daniel Sancho samband við lögregluna og sagði að unnusti sinn væri horfinn. Tælenska lögreglan leysti málið hratt og örugglega. Hún fann líkamshluta Edwin á víð og dreif, á öskuhaugum og úti í sjó. Edwin hafði verið stunginn ítrekað í brjóstið og síðan bútaður niður. 

Daniel streittist ekki lengi á móti, hann játaði allt og sagði að honum hefði reynst ómögulegt að slíta sambandinu, hann hefði verið fangi Edwins og þetta hefði verið eina leiðin.

Saksóknari fer fram á dauðadóm

Daniel sýndi mikinn samstarfsvilja og fór með lögreglunni um allt og sýndi þeim hvernig þetta hefði allt viljað til. Rannsókn er að fullu lokið sagði lögreglan á blaðamannafundi í vikunni. Morðið hefði verið skipulagt út í ystu æsar og farið yrði fram á dauðarefsingu yfir Daniel.

Það er því ekki auðvelt að vera Daniel Sancho í dag. Eða hvað...? Á þeim fréttamyndum sem birtar hafa verið frá Tælandi sést sultuslakur Daniel rölta með lögreglunni og af til stoppar hann til að veita fréttamönnum sem fylgja þeim eftir viðtöl.

„Hrokafullur narsissisti“

Daniel er matreiðslumaður og gefur sig út fyrir að vera áhrifavaldur. Hann kynnir sig á samfélagsmiðlum sem eigandi tveggja veitingastaða í Madrid. Þar kannast menn ekki við að hann eigi neitt í þessum stöðum. Gamlir skólafélagar Daniels lýsa honum sem hrokafullum narsissista sem gerði ævinlega það sem honum sýndist.

Á forsíðum allra blaða

Daniel er sonur og barnabarn þekktra leikara hér á Spáni og þar með kærkomið fóður allra slúðurblaða og -þátta sem hér ríða húsum. Og það eru ekki fáir þættir og blöð. Hann hefur verið á forsíðum og til umfjöllunar dag eftir dag.

Það má því kannski segja að Daniel baði sig um þessar mundir upp úr vafasamri og sorglegri frægð, en að sama skapi má segja að það séu áhorfendur og lesendur sem á endanum baða hann í sviðsljósinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×