Innlent

Telja vatnið á Akra­nesi öruggt þrátt fyrir ó­bragð

Kjartan Kjartansson skrifar
Drykkjarvatn á Akranesi kemur bæði frá lóni og borholum. Óbragðið hefur greinst víða um bæinn án sjáanlegs mynsturs.
Drykkjarvatn á Akranesi kemur bæði frá lóni og borholum. Óbragðið hefur greinst víða um bæinn án sjáanlegs mynsturs. Vísir/Vilhelm

Engar skaðlegar örverur fundust í sýnum sem voru tekin úr drykkjarvatni á Akranesi í gær eftir að íbúar kvörtuðu undan óbragði af því. Forstöðumaður hjá Veitum segir leit standa yfir að orsökum óbragðsins í lóni í nágrenni bæjarins.

Tilkynningar um óbragð af vatni tóku að berast Veitum á miðvikudag. Í íbúahópi á Facebook-lýsa sumir bragðinu sem „myglubragði“.

Sýni voru tekin í gær og send í ræktun en engar skaðlegar örverur komu í ljós. Veitur telja því í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands að vatnið sé öruggt til neyslu, að sögn Rúnar Ingvarsdóttir, upplýsingafulltrúa Veitna.

„Úr þessum sýnatökum kemur í raun það fram að þarna er ekkert hættulegt á ferðinni en engu að síður eru bragðgæðin ekki eins og við viljum hafa þau,“ segir Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum.

Sérfræðingar Veitna hafa leitað að uppruna óbragðsins í gær og í dag. Þeir telja sig hafa rakið hann til lóns við Berjadalsá í hlíðum Akrafjalls. Jón Trausti segir að sýnin hafi verið tekin beggja vegna við lýsingartæki sem baðar vatnið úr lóninu í útfjólubláuljósi sem deyðir örverur. Sjálfur smakkaði Jón Trausti vatnið og lýsir bragðinu sem moldarbragði.

„Við vonumst til þess að geta verið komin með greinarbetri mynd á það áður en dagurinn er á enda,“ segir Jón Trausti um rannsóknina á lóninu. Í því skyni verða myndavélar sendar ofan í lónið til þess að greina ástandið í því í dag.

Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum.Aðsend

Stenst öll gæðaviðmið fyrir matvæli

Jón Trausti segist hafa mikinn skilning á því að fólk finnist óþægilegt að finna óbragð af drykkjarvatninu. Fyrsta sem hafi verið gert hafi verið að tryggja að ekkert hættulegt væri á ferðinni. Bragðfrávikið sé þó augljóst.

„Sýnin virðist standast öll þau gæðaviðmið sem við setjum varðandi matvæli því vatnið sem kemur frá okkur er vottuð matvara. Það er ekkert sem er utan þeirra viðmiða sem gilda um það hvort vatn sé neysluhæft eða ekki. En það er þetta gæðafrávik sem snýr að bragðgæðum og það viljum við gjarnan laga og erum að vinna í,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×