Íslenski CrossFit kóngurinn skoraði tvö mörk á Íslandsmótinu í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2023 09:00 Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson er nú í hvíld eftir átökin á heimsleikunum og eitt af því sem hann hefur stundum gert er að hjálpa sínu félagi í fótboltanum.
Björgvin Karl kom vægast sagt sterkur inn um helgina þegar hann lék með liði Stokkseyrar í fimmtu deild karla í fótbolta. Leikurinn var á móti Álafossi í A-riðli deildarinnar. Björgvin Karl skoraði tvö mörk í 4-2 útisigri en leikurinn fór fram á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Það tók Björgvin aðeins þrettán mínútur að komast á blað en hann jafnaði þá metin í 1-1 eftir að Magnús Már Einarsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Aftureldingu, hafði skorað fyrsta mark leiksins fyrir Álafossliðið. Björgvin Karl kom síðan Stokkseyri í 3-1 á þriðju mínútu í síðari hálfleiknum. Björgvin er náttúrulega í betri formi en flestir og lék sér að því að spila níutíu mínútur í fyrsta leik tímabilsins. Tvö mörk að meðaltali í leik er ekki slæmt hjá BKG en hvort hann taki þátt í fleiri leikjum verður að koma í ljós. Hann spilaði engan leik í fyrra og einn leik sumarið 2021. Þetta voru hans fyrstu mörk á Íslandsmótinu síðan sumarið 2003 þegar hann skoraði á móti bæði Kóngunum og Árborg í 4. deild karla. View this post on Instagram A post shared by Bjo rgvin K. Guðmundsson (@bk_gudmundsson)
Fótbolti CrossFit Mest lesið Vonast til að komast í Kórinn: „Menn hafa aldrei séð annað eins“ Fótbolti Landsleiknum aflýst og framhaldið óljóst Fótbolti Fær þrjár milljónir á dag næstu sex árin fyrir að gera ekkert Sport Stöðufundur í Laugardal klukkan 10:30 Fótbolti Enska úrvalsdeildin í jólaköttinn Enski boltinn Elsta konan til klára Járnkarlinn Sport Markvörður Inter banaði háöldruðum manni í hjólastól Sport Landsliðskonur aðstoðuðu ökumenn í vanda Fótbolti Segir að Slot verði að taka tvo leikmenn út úr Liverpool-liðinu Enski boltinn Nýi íþróttastjóri Kjartans stal mörgæs og endaði í fangelsi í Singapúr Fótbolti Fleiri fréttir Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ „Ég þarf bara að láta verkin tala“ Valur og Sigurður Egill senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu Hemmi Hreiðars orðaður við Val Katrín kvödd með fallegum hætti: „Ég hef aldrei séð þetta áður“ Sjáðu þrumufleyg Fred og snöggt svar Stjörnunnar Enginn þjálfari hefur bæði byrjað og klárað Sambandsdeildina Stúkan birti skilaboðin: „Mér finnst þetta ömurlegt“ Uppgjörið: Fram-Stjarnan 1-1 | Úrslitaleikur um Evrópusæti um næstu helgi Sigurður Egill svarar yfirlýsingu Vals: Ómakleg og lágkúruleg setning Sjá meira