Davíð og Mogginn Árni Tómas Ragnarsson skrifar 14. september 2023 12:31 Ég hef lesið Moggann daglega frá því ég var 5 ára. Hann er ómissandi í lífi mínu. Ég er alinn upp í íhaldsfjölskyldu og við vorum öll ánægð með Moggann okkar. Svo kom Víetnamstríðið þegar ég var á táningsaldri og síðan beint í kjölfarið létu Kanarnir drepa Allende í Chile og arðrán þeirra í S-Ameríku jókst í sífellu undir herforingjastjórnum, sem létu drepa andstæðinga sína í þúsundatali. Mogginn studdi þetta allt saman, en af því að ég var svo háður honum varð ég áskrifandi að honum sjálfur þegar ég fór að búa; það var svo margt annað sem var gott í honum, en ég hætti þó að minnsta kosti að vera íhald, varð gagnrýninn í samfélagsmálum, en var eins og aðrir slíkir kallaður „kommi“ í Mogganum eins og svo margir félagar mínir í sömu stöðu - og eins og alltaf hefur verið gert í USA, allir kallaðir kommar (eða skammaryrðinu „frjálslyndir“) ef þeir voru ekki öfga hægri menn. (Gott á Moggann að hann fattaði það ekki fyrr en seint að ég væri ekki lengur íhald og vonarstjarna þess og birti grein eftir mig samin fyrir stúdenta sem leiðara í blaðinu tveimur dögum síðar!). Útúrdúr. Jæja, ég hélt áfram að kaupa minn Mogga, en reyndi að hætta því þegar Davíð leppur fiskikónganna og fleiri tók við og fékk ofurlaun fyrir, enda stjarna, vel dalandi þó. Ég gat það ekki og nú Mogginn orðinn eina dagblaðið í landinu svo maður eiginlega neyðist til að kaupa það. Ég hef skrifað marga tugi greina í blaðið um ýmis mál um áratuga skeið (50 ár) og margir vinir mínir, sem kaupa ekki lengur Moggann né lesa hann (sbr. áskriftartölur) vegna ritstjórnar Davíðs, hafa áfellst mig fyrir að skrifa í Moggann. En nú er Davíð ekki aðeins áróðursmeistari fiskikónganna með sín svimandi háu laun, heldur er hann orðinn svo svívirðilega orðljótur og öfgafullur í garð margra góðra manna, ekki síst Dags borgarstjóra hérna heima, sem hann ofsækir, heldur líka Biden, forseta helstu vinaþjóðar okkar, frú Merkel fyrrverandi kanslara og Scholz núverandi kanslara Þýsklands, sem meiddi sig í auganu, en Davíð hæðist að honum fyrir það og kallar hann eineygða forsetann af því að hann datt og slasaðist á auga og gengur með lepp fyrir auganu. Hann kallar Scholz kanzlara Þýskalands (önnur helsta vinaþjóð okkar) „Scholz með leppinn”, sem vill nú endilega, að minnsta kosti „með öðru auganu“…. gera hitt og þetta. Síðar kallar hann Olaf Scholz kanslara „Ólaf eineygða” (fyndið a la Davíð Oddsson). Svo er um marga fleiri, sem Davíð líkar ekki við. Nær alla þjóðarleiðtoga ESB-landa, sem hann hatast við. Um Pútín og hans nóta segir hann hins vegar eins lítið og ljótt og hann telur sig komast upp með - enda er Rússland ekki í í liði með óvinunum í ESB. Trump er heldur ekki í ESB og er því líka einkavinur Davíð, en hinn ameríski hægri flokkurinn, demókratar, er bara ekki nógu öfgafullur fyrir Davíð. Þegar saudi-arabíski blaðamaðurinn var drepinn af mönnum arabíska olíuprinsins fyrir fáum árum, síðan leystur upp í sýrubaði og hellt niður um skólpið, þá neitaði Davíð því að þetta hefði gerst því prinsinn var vinur Trumps. Hann sagði þetta vera lygar frá fréttamönnum RÚV eins og svo oft áður. Allir þjóðarleiðtogar heims og fjölmiðlar fordæmdu þennan verknað, en ekki Davíð frekar en nokkrir ofstækisfullir arabar. Ég skrifaði um þetta grein í Moggann, en hún var ekki birt. Tími þrettán prósenta mannsins Davíðs er löngu liðinn, en ekki bara Bidens, eins og Davíð þreytist ekki við að klifa á, og hefur sennilega rétt fyrir sér þar. Merkilegt nokk! Davíð er ekki fyndinn lengur, hann hefur bara andstyggilegan húmor og skerta dómgreind Þannig að annað hvort segi ég upp Mogganum eða Mogginn segir Davíð upp. Sunnudagsbréfið um helgina fyllti mælinn á yfirgengilegan hátt. Hættu Davíð, hættu!! Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Árni Tómas Ragnarsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar