Lífið

Gústi bakari ljóstrar upp leyndar­málinu að bestu pítsu Reykja­víkur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka hlaut tilnefningu frá Reykjavik Grapevine sem besta pítsan í Reykjavík árið 2023.
Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka hlaut tilnefningu frá Reykjavik Grapevine sem besta pítsan í Reykjavík árið 2023. Elísabet Blöndal

Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka fagnaði titlinum, besta pítsan í Reykjavík 2023, á dögunum með pompi og prakt. Viðurkenningin var veitt af menningartímaritinu Reykjavik Grapevine.

Tímaritið hefur frá árinu 2009 tilnefnt staði í Reykjavík ár hvert fyrir yfirburða mat, drykki, menningartengda viðburði og aðra hluti sem draga fólk að miðbænum.

Bakabaka var valinn besti nýliðinn í fyrra en hreppti titilinn í ár eftir að Flatey pítsa bar sigur úr býtum síðastliðin fjögur ár.

Góð pítsa ekki flókin

Fjöldi gesta mættu og samfögnuðu staðnum í dýrindis pítsuveislu og hlustuðu á vel valin lög DJ. Ívars Péturs.

En hvert er leyndarmálið á bakvið bestu pítsu Reykjavíkur?

„Góð pítsa er nú ekki flókin. Fullkominn botn, bakaður á eldi með bestu mögulegu tómötum á toppinn,“ segir Ágúst Fannar Einþórsson, eða Gústi bakari, einn af eigendum BakaBaka.

Hann segir uppskriftina enn í mótun til að fá pítsuna ennþá betri. 

„Við sækjum tómatana frá Sikiley sem heita siccagno. Þeir eru alveg stórmerkilegir, með einstakt tómatabragð, frekar litlir með mjög þykkt hýði og vaxa nánast án vatns. Heimamaðurinn kallar þá Red gold of sicily en ég kalla þá bara tómata,“ segir Gústi.

Þá buðu Vínstúkan Tíu sopar og Rætur og vín upp á afbragðs náttúruvín sem rann ljúffenglega niður kverkar veislugesta.

Líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna skemmtu gestir sér einstaklega vel og fóru saddir heim.

Erna Bergmann og Árni Vilhjálmsson.Elísabet Blöndal
Dagny Berglind Gísladóttir og Börkur Davíðsson.Elísabet Blöndal
Ágúst Fannar Einþórsson, Gústi bakari.Elísabet Blöndal
Bergsteinn Jónsson og Sylvía Þorvaldsdóttir. Elísabet Blöndal
Guðbjörg Friðriksdóttir og Ævar Österby. Elísabet Blöndal
Elín Árnadóttir og Viktor Pétursson. Elísabet Blöndal
Birgir Ísleifur Gunnarsson og Erna Bergmann. Elísabet Blöndal
Stefán Darri Þórsson, Eva Dögg Rúnarsdóttir og Sólgerður Lúna Stefánsdóttir. Elísabet Blöndal
Hildur Þórhallsdóttir og Hafliði Pétursson. Elísabet Blöndal
Andrea Rún Carlsdóttir, Helga Snjólfsdóttir, Bella Morgan, Bjarni Lúðvíksson, Soffía Hjörvarsdóttir og Stefán Eyjólfsson.  Elísabet Blöndal
Björn Steinar Jónsson, Björn Árnason, Hrefna Sætran og Íris Laxdal. Elísabet Blöndal
Rannveig Kristjánsdóttir og Hildur Yeoman. Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Níels Níelsson, Gústi bakari og Bastían Nói Ágústsson. Elísabet Blöndal
Tvær gómsætar pizzur. Elísabet Blöndal
Margt var um manninn í veislunni.Elísabet Blöndal
Daníel Kristjánsson og Sara Geirsdóttir. Elísabet Blöndal
Náttúruvín voru á boðstólnum.Elísabet Blöndal
Rakel Tómasdóttir og Rósa María Árnadóttir. Elísabet Blöndal
Kristín Kristinsdóttir og Sturla Már Björnsson. Elísabet Blöndal
Bella Morgan og Tanja Geirmundsdóttir.Elísabet Blöndal
Sólgerður Lúna Stefánsdóttir, Eva Dögg Rúnarsdóttir og Hrefna Sætran.Elísabet Blöndal





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.