Vilja setja alþjóðlegan auðlegðarskatt á auðjöfra Samúel Karl Ólason skrifar 24. október 2023 12:12 Auðjöfrar víða um heim greiða lítinn sem engan skatt og komast hjá því með notkun skúffuélaga. Getty Alþjóðlegur auðlegðarskattur á auðjöfra er meðal tillaga sem gætu dregið verulega úr undanskotum á heimsvísu og skilað um 250 milljörðum dala í ríkissjóði heimsins á hverju ári. Í nýrri skýrslu frá Skattastofnun Evrópusambandsins segir að auðjöfrar beiti skúffufélögum til að borga nánast enga skatta.
250 milljarðar dala samsvara tæpum 35 billjónum króna (34.775.000.000.000). Í skýrslunni, sem finna má hér, leggja sérfræðingar stofnunarinnar (EU Tax Observatory) til að lagður verði minnst tveggja prósenta auðlegðarskattur á þá um 2.700 menn sem eiga meira en einn milljarð dala á heimsvísu. Þessi hópur er talinn eiga um þrettán billjónir dala, eða um 1,8 billjarða króna. Að svo stöddu greiði auðjöfrar mun minna en hefðbundnir skattgreiðendur eða frá núll til hálfs prósents af auð þeirra. Þetta geta þeir með notkun skúffufélaga engin tilraun hefur verið gerð, hingað til, til að reyna að koma í veg fyrir þessi undanskot auðjöfra. Í skýrslunni segir að undanskot undan sköttum sé ekki náttúrulögmál, heldur sé það á ábyrgð yfirvalda að leyfa slíkt. Þörf á pólitískum vilja EUTO segir að dregið hafi úr því að auðjöfrar feli auðæfi sín í skattaparadísum á undanförnum áratug og að sá árangur byggi á því að yfirvöld í skattapardísum hafi verið beðin um að deila bankaupplýsingum með öðrum. Það sé þó hægt að gera betur og draga úr undanskotum, sé pólitískur vilji fyrir hendi. Í samtali við blaðamenn í gær sagði Gabriel Zucman, yfirmaður EUTO, að erfitt væri að réttlæta lága skattbyrði auðjöfra og hún græfi undan skattkerfum og samfélagslegri samþykkt á skattgreiðslu yfir höfuð, samkvæmt frétt Reuters. Sífellt meiri misskipting auðs hefur samkvæmt Reuters leitt til ákalla víða um heim um að skattbyrði auðugs fólks verði aukin. Þörf sé á því vegna hækkandi meðalaldurs víða um heim, fjárhagslegra burða vegna veðurfarsbreytinga og vegna uppsafnaðra skulda vegna Covid. Segir ósanngjarna skattbyrði ógna lýðræðinu Joseph Stiglitz, bandarískur hagfræðingur og nóbelsverðlaunahafi, skrifar inngang skýrslunnar en þar segir hann að ósanngjörn skattbyrði ógni lýðræðinu. Almenningur sjái auðjöfra og fyrirtæki komast undan því að taka þátt í að halda samfélaginu gangandi og það leiði til reiði. Þá auki núverandi fyrirkomulag á ójöfnuð og veiki traust á opinberar stofnanir. Þá segir Stiglitz að hnattvæðing hafi aukið getu auðjöfra heimsins til að komast hjá skattgreiðslu og þetta hafi of lengi verið samþykkt sem óhjákvæmileg fylgni hnattvæðingar. Það sé þó hægt að taka á vandanum. EUTO leggur fram sex tillögur að aðgerðum sem hannaðar eru til að taka á áðurnefndum vandamálum. Fyrsta tillagan snýr að því að setja á 25 prósenta fyrirtækjaskatt á heimsvísu og loka undankomuleiðum. Önnur tillaga snýr að tveggja prósenta auðlegðarskatt á ríkasta fólk heimsins, eins og áður hefur komið fram. Einnig er lagt til að hnattræn eignaskrá verði mynduð, sem hægt yrði að nota til að berjast betur gegn undanskotum frá skatti og að þróaðar verði leiðir til sanngjarnar skattlagningar á ríkt fólk sem hafa búið lengi í einu ríki en flytja í annað, þar sem skattar eru lægri, svo eitthvað sé nefnt.
Evrópusambandið Skattar og tollar Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira