Innlent

Tryllingur í Kringlunni og mar­tröð í Sóltúni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sannkölluð örtröð myndaðist við opnun Ginu Tricot í Kringlunni í lok nóvember. Eitt af stærri neytendamálum ársins.
Sannkölluð örtröð myndaðist við opnun Ginu Tricot í Kringlunni í lok nóvember. Eitt af stærri neytendamálum ársins. Vísir/Hulda Margrét

Verðbólga í hæstu hæðum og vextir líka. Allt er orðið svo ótrúlega dýrt en við gefum samt ekkert eftir í neyslunni. Hér lítum við yfir neytendaárið 2023.

Unglingsstúlkur voru í uppnámi við opnun Ginu Tricot, mörghundruð metra röð myndaðist á lagersölu í Laugardalshöll og Inga Sæland bað heilbrigðisráðherra að láta salem light í friði svo hún gæti dottið almennilega í það á tuttugu ára fresti. 

Áhrifavaldar leigðu þyrlu fyrir kynjaveislu og heilbrigðiseftirlitið afhjúpaði martröð í Sóltúni. Þetta og svo margt fleira í neytendaannál fréttastofu hér fyrir neðan.

Klippa: Annáll 2023 - Neytandinn

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar rifjar upp árið í desember. Glæpir verða til umfjöllunar í næsta annál, sem birtist hér á Vísi á mánudag.


Tengdar fréttir

Á tæpasta vaði: Deilur og drama á stjórnarheimilinu

Viðburðaríkt ár er að baki á sviði stjórnmálanna og ólga er kannski orð sem nær ágætlega utan um það. Ólga vegna kjaramála, verðbólgu, hvalveiða, laxeldis, stríðsreksturs á Gasa, bankasölu og í sjálfu stjórnarsamstarfinu. Við förum yfir liðið ár sem einkennist af deilum og dramatík.

Versta klúður ársins 2023

Öllum varð okkur á í messunni með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. Í þessari klúðuryfirferð fyrir árið 2023 ætlum við að varpa ljósi á feilsporin sem stigin voru.

Ástföngnu dúfurnar hans Magnúsar Hlyns

Ástfangnar dúfur, einstök vinátta og krummi sem elskar pönnukökur. Hver annar en Magnús Hlynur færir okkur fréttir af hundrað ára konu sem ætlar að fagna deginum með því að detta í það og heyrnarlausri kind? Hér er farið yfir nokkur gullkorn úr jákvæðustu fréttum ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×