Viðskipti innlent

Icelandair semur um rekstur flugeldhúss fé­lagsins til tólf ára

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Jonathan Stent Torriani, annar forstjóri Newrest, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, innsigla samninginn með handabandi. 
Jonathan Stent Torriani, annar forstjóri Newrest, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, innsigla samninginn með handabandi.  Aðsend mynd

Icelandair hefur gert tólf ára samning við fyrirtækið Newrest Group um rekstur flugeldhúss Icelandair á Keflarvíkurflugvelli. Newrest tekur við rekstrinum 1. febrúar næstkomandi. Flugeldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru framleiddar veitingar sem flugfélagið býður upp á í flugi. 

Í tilkynningu frá Icelandair er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að mikil spenna sé fyrir samstarfinu enda hafi Newrest mikla sérþekkingu á rekstri flugeldhúsa. „Þannig getum við aukið gæði og skilvirkni á meðan við einbeitum okkur að því sem við erum best í, að reka flugfélag,“ segir Bogi og að í leit að samstarfsaðila hafi verið mikil áhersla lögð á að sem minnstar breytingar yrðu á starfsmannahópi eldhússins. 

„Enda býr starfsfólk eldhússins okkar á Keflavíkurflugvelli yfir gríðarlega mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast nýjum rekstraraðila, og þar með Icelandair, vel til langrar framtíðar,“ segir hann jafnframt. Newrest sé eitt af fremstu fyrirtækjum heims í rekstri flugeldhúsa og þeir séu þú þegar í samstarfi við fjölda alþjóðlegra flugfélaga á borð við SAS, Delta, United Airlines og Air Canada. 

Starfsfólk Icelandair auk Newrest ánægð með samninginn. Mynd aðsend

„Það er mikill heiður að hefja samstarf við Icelandair. Flugfélagið hefur sýnt í verki getu sína til að takast á við fjölda áskorana á undanförnum árum og á sama tíma náð góðum árangri í rekstrinum sem og í þjónustu við farþega,“ er haft eftir forstjórum Newrest þeim Jonathan Stent Torriana og Olivier Sadran. 

Þeir segja markmiðið að styðja við rekstur og vöxt félagsins auk þess að halda áfram að þróa gott úrval veitinga um borð í vélum Icelandair. 

„Starfsfólk flugeldhússins býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á veitingaþjónustu í flugvélum og á þörfum viðskiptavina félagsins. Við leggjum því höfuðáherslu á að taka vel á móti hópnum og vitum að teymið er lykillinn að áframhaldandi árangri.“


Tengdar fréttir

Flugumferðarstjórar boða til verkfalls í næstu viku

Flugumferðarstjórar munu að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku. Samningar milli þeirra og Isavia hafa verið lausir í rúma tvo mánuði og formaður Félags flugumferðarstjóra segir enn töluvert bera í milli.

Fyrstu brottfarir klukkan ellefu

Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×