Innlent

Gos­virkni á­fram sýni­leg en minni en í gær

Telma Tómasson og Atli Ísleifsson skrifa
Of snemmt er talið að lýsa yfir goslokum.
Of snemmt er talið að lýsa yfir goslokum. Vísir/Vilhelm

Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, en virðist heldur minni en í gær.

Þetta segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi um klukkan hálf átta í morgun.

Hún segir að enn sjáist glóð í vefmyndavélum, en erfitt sé að sjá kvikustrókavirkni. Staðfestingu á raunverulegri stöðu þyrfti að fá með flugi yfir svæðið.

Sigríður vill ekki lýsa yfir goslokum enn sem komið er, en sérfræðingar munu funda um stöðuna klukkan 9:30.

Virðist hafa dottið niður í nótt

Eldfjalla- og náttúrvárhópur Suðurlands veltir þeirri spurningu hins vegar upp á Facebooksíðu-sinni í morgun. Þar segir að gosvirkni virðist hafa dottið alveg niður í nótt, enn glitti í bjarma hér og þar í heitu hrauninu en erfitt sé að sjá glóð á vefmyndavélum.

Órói hafi fallið niður frá miðnætti og virðist nálgast sömu stöðu og fyrir gos.


Tengdar fréttir

Vaktin: Gosvirknin sýnileg, stöðug og svipuð og í gær

Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, stöðug og svipuð og hún var í gær en ef eitthvað er hefur hugsanlega dregið aðeins úr henni, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×