Andstæðingar sjókvíaeldis æfir vegna ákvörðunar Helga Jakob Bjarnar skrifar 21. desember 2023 17:05 Forsíða og aðal efni Veiðimannsins fjallar um ókindina í íslenskri náttúru, sjókvíaeldið. Teikningin er eftir Gunnar Karlsson. Á forsíðu nýs tölublaðs Veiðimannsins, tímariti Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er mynd eftir Gunnar Karlsson þar sem sjókvíaeldið er teiknað upp sem ókindin í íslenskri náttúru. Niðurstaða Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum, sú að fella niður rannsókn á slysasleppingum fyrir vestan, kemur illa við andstæðinga sjókvíaeldis. „
Já, við stígum fast til jarðar með þessu. Við vorum með skoðanakönnun hjá félagsmönnum og yfirgnæfandi meirihluti er á móti sjókvíaeldi. Við getum verið algjörlega á móti þessu,“ segir Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR um forsíðuna og meginefni Veiðimannsins. Grafík úr forsíðufrétt Veiðimannsins. Þarna kemur í ljós hversu sláandi mikið eldið er á móti hinum villta laxastofni. Greint var frá því fyrr í dag að Helgi Jensson lögreglustjóri á Vestfjörðum hafi hætt rannsókn á máli vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Kvígindisdal í Patreksfirði. Á fjórða þúsund kynþroska laxar sluppu og gengu upp í íslenskar laxveiðiár. Helgi segir ekki grundvöll til að halda rannsókninni áfram, gögn málsins beri ekki með sér að umbúnaður við kvína hafi verið áfátt vegna athafna og athafnaleysis. Niðurstaðan gat ekki orðið önnur Þessi ákvörðun Helga fellur í grýttan jarðveg meðal andstæðinga sjókvíaeldis sem telja einsýnt að sjókvíaeldismönnum sé nú fært að fara sínu fram og um þá sé slegin skaldborg af yfirvöldum. „Í lögum um fiskeldi kemur fram að það varði framkvæmdastjóra og stjórnarmenn rekstrarleyfishafa sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, séu sakir miklar. Til dæmis ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldi hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi. Samt er lögreglan fyrir vestan að hætta rannsókn sinni,“ segir meðal annars í færslu á Icelandic Wildlife Fund. Sú niðurstaða Helga að fella niður rannsóknina bendi til þess að „gáfulegra hefði verið að fela öðru lögreglustjóraembætti en heimamanna þessa rannsókn,“ segir jafnframt í pistli á Fb-síðu IWF. „Þessir menn eru jarðvöðlar“ Ragnheiður tekur í sama streng. „Það var vitað hvernig færi um leið og þetta embætti fyrir vestan var látið rannsaka þetta. Ég skil hann vel. Ragnheiður Thorsteinsson er formaður SVFR og hún segir nú tíma til kominn að setja fótinn niður.aðsend Fólk hefur mikla hagsmuna að gæta í þessu máli þarna fyrir vestan. Ég hef samúð með því fólki en þetta er skellur. Hver á til dæmis að borga fyrir þessa kafara sem voru hér í marga mánuði. Þetta er ekkert endirinn á þessu máli. Menn verða að bera ábyrgð á sínum gjörðum, það þurfa allir að gera. Þessir menn eru jarðvöðlar,“ segir Ragnheiður. Hún segist átakafælin og vilji forðast að vera herská en nú sé tímabært að setja fótinn niður. Enn einn sem ekki er skemmt vegna þessarar niðurstöðu lögreglustjórans á Vestfjörðum er Jón Þór Ólason lektor í lagadeild við Háskóla Íslands en hann hefur kennt refsirétt í 23 ár. Jón Þór segir þetta galið og tímasetningin komi ekki á óvart, ákvörðunin hafi örugglega legið fyrir í nokkra daga en nú sé hún tilkynnt ofan í gosfréttir og korter í jól. Röng niðurstaða Jón Þór er standandi undrandi á niðurstöðu löggreglustjórans á Vestfjörðum. Hann telur hana beinlínis ranga.aðsend Niðurstaða lögreglustjórans á Vestfjörðum varðandi slysasleppingu Artic Fish er ekki bara með hreinum ólíkindum heldur bæði efnislega og lögfræðilega röng,“ segir Jón Þór í samtali við Vísi. Hann segir niðurstöðuna meðal annars rökstudda með þeim hætti að gögn málsins ekki beri með sér að umbúnaður við kvína hafi verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis sakbornings. Þá kemur jafnframt fram að lagaumhverfið í málum sem þessum sé erfitt og að lögin séu meira leiðbeinandi um starfsemina fremur en refsilög. „Eins og Vésteinn Vésteinsson mælti, „nú falla öll vötn til Dýrafjarðar“. Vissulega er það svo að að lög um fiskeldi mættu vera skýrari, en þessi lagatúlkun nokkuð ný til skipaða lögreglustjóra taka út yfir allan þjófabálk og bera með sér hreint ótrúlega vanþekkingu á lögskýringum, svo ekki sé kveðið fastar að orði.“ Sleppingin hlýtur að varða refsingu Jón Þór segir fiskeldislögin kveða á um tiltekna markmiðsskýringu, það er að við framkvæmd laganna skuli þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra fiskistofna og að sjálfbærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu. Sjókvíar í Tálknafirði.Arnarlax „Engum vafa er undirorpið að netapokaslysaslepping Artic Fish er efni í atriði í Áramótaskaupi RÚV – enda komu norskir froskmenn til landsins til að veiða hinn norska lax er slapp úr kvíunum. Umrædd sérrefsilög, sem lögreglustjórinn telur vera „leiðbeinandi“, kveða þó á um það að ef að eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði um fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af gálsysis, þá varði það refsingum.“ Íslenska ríkið að kalla yfir sig skaðabótaskyldu Jón Þór spyr hvað liggi fyrir í máli þessu? „Í grunninn er viðurkennt og raunar óumdeilt að lax sleppur úr netapokum og því þarf að miða lagaumhverfið við þá staðreynd. Í máli þessu liggur fyrir að Artic Fish er ekki með nákvæma tölu laxa er sluppu, fylgdust ekki með kvínni í þrjá mánuði, ljósastýringingin var í algjöri ólgagi og fyrirsvarsmaðurinn var víðs fjarrri. Þarf frekari vitnana við – hættan á erfðablöndun lá skýrlega fyrir en netapokafyrirtækjunum er treyst fyrir að fylgjast með sér sjálfum. Einmitt.“ Jón Þór segir þessa niðurstöðu algjörlega í andstöðu við heilbrigða skynsemi laga og efnisleg rök. Allt að einu þá sé íslenska ríkið að kalla yfir sig skaðabótaskyldu, norskum auðmönnum til handa.
Sjókvíaeldi Lax Umhverfismál Hagar Tengdar fréttir Lögregla hætt rannsókn á slysasleppingum í Patreksfirði Lögreglustjórinn á Vestfjörðun hefur hætt rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arctic Sea Farm ehf í Kvígindisdal í Patreskfirði í ágúst síðastliðnum en hún var hafin í kjölfar kæru Matvælastofnunar í september. 21. desember 2023 09:20 „Eitthvað sem við getum ekki samþykkt og þessu verður að linna“ Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga býst við miklu fjölmenni á Austurvelli í dag þegar sjókvíaeldi verður mótmælt. Síðasta slysaslepping hjá Arctic Fish og afleiðingar hennar hafi fyllt mælinn og þessu verði að linna. Sýnt verður frá mótmælunum í beinni á Vísi á eftir. 7. október 2023 12:13 Langflestir strokulaxanna kynþroska: „Þetta er nákvæmlega það sem menn hafa óttast“ Langflestir eldislaxanna sem norsku rekkafarnir hafa veitt á Vesturlandi voru kynþroska. Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun telur að rúmlega þúsund kynþroska laxar leiti nú upp í ár á Vesturlandi og víðar. Erfðablöndun við villta íslenska laxinn sé það nákvæmlega sem menn hafa óttast. 23. september 2023 12:45 Mest lesið Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Erlent Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Innlent Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Erlent Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Erlent Starfsmenn þingflokks taka pokann sinn Innlent Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Innlent Bregðast við árás á barnaníðing í Fellabæ Innlent Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Úlfarsárdal Innlent Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Fleiri fréttir Leggur fram öryggis- og varnarstefnu: „Ógnin er veruleg“ Óformlegar verkfallsaðgerðir hjá Play og tilfinningaþrungnir dagar Bregðast við árás á barnaníðing í Fellabæ Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Úlfarsárdal Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Ríkisstjórnin þverbrjóti leikreglur vinnumarkaðarins Starfsmenn þingflokks taka pokann sinn Vilja afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna Sá yngsti til að verða kjörinn goði hjá Ásatrúarfélaginu Forstöðumenn fangelsa lýsa kerfislægri krísu og segja ástandið óásættanlegt Búin að sjóða vatn í rúman mánuð og segir íbúa ekki treysta vatnsbólinu Þurfa 12-15 milljónir til að halda Ylju opinni um helgar Lýðræðislegri umræðu og samstöðu ógnað Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Starfsmannafundur hjá Play og enn leitað að morðingja Charlie Kirk Hæstiréttur tekur fyrir mál móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi Bein útsending: Áherslur og forgangsaðgerðir Íslands í loftslagsmálum Ríflega þúsund börn bíða eftir að komast að en ekki 400 Fjórtán áherslur í varnar- og öryggismálum: „Öryggisógnin er raunveruleg og aðkallandi“ Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Bein útsending: Skýrsla samráðshóps um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum Tveir handteknir fyrir húsbrot og einn fyrir að vera ólöglega á landinu Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Sjá meira
Lögregla hætt rannsókn á slysasleppingum í Patreksfirði Lögreglustjórinn á Vestfjörðun hefur hætt rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arctic Sea Farm ehf í Kvígindisdal í Patreskfirði í ágúst síðastliðnum en hún var hafin í kjölfar kæru Matvælastofnunar í september. 21. desember 2023 09:20
„Eitthvað sem við getum ekki samþykkt og þessu verður að linna“ Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga býst við miklu fjölmenni á Austurvelli í dag þegar sjókvíaeldi verður mótmælt. Síðasta slysaslepping hjá Arctic Fish og afleiðingar hennar hafi fyllt mælinn og þessu verði að linna. Sýnt verður frá mótmælunum í beinni á Vísi á eftir. 7. október 2023 12:13
Langflestir strokulaxanna kynþroska: „Þetta er nákvæmlega það sem menn hafa óttast“ Langflestir eldislaxanna sem norsku rekkafarnir hafa veitt á Vesturlandi voru kynþroska. Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun telur að rúmlega þúsund kynþroska laxar leiti nú upp í ár á Vesturlandi og víðar. Erfðablöndun við villta íslenska laxinn sé það nákvæmlega sem menn hafa óttast. 23. september 2023 12:45