Háskóli alþýðunnar, vettvangur heilbrigðra skoðanaskipta, verkstæði fjölbreyttra framkvæmda og staður stórra drauma Páll Steingrímsson skrifar 4. janúar 2024 13:01 Það kom mér ekki á óvart að útvarpsstjóri stakk nýjustu tíðindunum um Ríkisútvarpið undir stólinn í gamlársdagsávarpi sínu en reyndi þess í stað að telja fólki trú um að stofnunin sem hann stýrir sé mikilvæg okkur almenningi og ekki bara það, heldur „RÚV okkar allra, fyrir þig.“ Að sögn útvarpsstjóra er stofnunin ekki eingöngu fjölmiðill heldur einnig háskóli alþýðunnar og vettvangur heilbrigðra skoðanaskipta, verkstæði fjölbreyttra framkvæmda og staður stórra drauma. Það er stórt nafn Hákot. Ríkisútvarpið framleiddi þátt í nóvember 2019 þar sem andstaðan gegn kvótakerfinu og Samherja var matreidd, nánast eins og ofan í börn, einhliða og án minnstu tilraunar til jafnvægis í umfjöllun. Mig rekur ekki minni til þess að sambærilegur þáttur hafi nokkru sinni verið gerður, a.m.k. hefur hugtakið skattsvik og AirBNB ekki verið útskýrt. Svona rækir Ríkisútvarp hlutverk sitt sem „háskóli alþýðunnar.“ Aðalsteinn Kjartansson fór mikinn árið 2022. Mætti hann í drottningarviðtal í Ríkisútvarpið, sinn gamla vinnustað, þið vitið, „stað stórra drauma“, og tilkynnti að hann hefði kært til Mannréttindadómstóls Evrópu að lögreglan dirfðist að gera hann að sakborningi í rannsókn sinni. Lögmaður hans, sem er reynslubolti á sviði mannréttinda, vissi mæta vel að tímamörk fyrir kæru voru löngu liðin. Engu að síður fékk Aðalsteinn að fjalla um kæru sína gagnrýnislaust í myndveri Ríkisútvarpsins. Á móti kemur, að ég hef tvívegis boðist til að ræða við Ríkisútvarpið um mína hlið málsins, en þau boð hafa verið afþökkuð pent. Svo sannarlega vettvangur „heilbrigðra skoðanaskipta.“ Samstarfsmaður Aðalsteins hjá Blaðamannafélagi Íslands fór einnig mikinn. Frá því að nýr formaður félagsins, sem er starfsmaður Ríkisútvarpsins, tók við embætti hafa siðareglur félagsins verið útvatnaðar og PR-herferðin tekin upp á efsta stig til að vekja samúð umheimsins með blaðamönnum. Auk fjölmargra málþinga með blaðamannasakborningum hefur formaðurinn tekið þátt í útbreiðslu falsfrétta í gegnum leigupennann Lasse Skytte. Fjölmiðillinn Aftenposten sá ástæðu til að biðjast afsökunar á að hafa tekið þátt í partýinu. Þó verður að telja að formaðurinn og starfsmaður Ríkisútvarpsins hafi trompaði sig með kröfu um frumkvæðisathugun umboðsmanns Alþingis á vinnubrögðum lögreglunnar á Norðurlandi fyrir að hafa gert blaðamenn að sakborningum í yfirstandandi rannsókn sinni. Slíkt má auðvitað ekki þar sem þeir líta svo á að þeir sjálfir séu friðhelgir. Blásið var til fjölmiðlaherferðar til að vekja athygli á kröfunni en líkt og oft áður fer minna fyrir niðurstöðu málsins. Í ársskýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2022 segir m.a. „Umboðsmanni berast stundum kvartanir sem ekki eru tækar til meðferðar ...“ Ljóst er af ársskýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2022 að beiðni Blaðamannafélagsins þótti ekki tæk til meðferðar. Í máli, hvar ég er brotaþoli og einir fimm blaðamenn sakborningar, eru ótal gögn sem sýna fram á sérkennilega aðkomu Ríkisútvarpsins. Þar á bæ var keyptur sími í apríl 2021 með næstum því sama símanúmeri og mitt. Símanúmer Ríkisútvarpsins er óskráð og upplýsingar um það hvergi að finna, og hefur aðeins verið notað árið 2021, einkum til að eiga samskipti við andlega veikan einstakling. Þá liggur fyrir að viðkomandi einstaklingur afhenti starfsmanni Ríkisútvarpsins síma minn meðan ég lá í öndunarvél, en það kemur fram í upplýsingum frá héraðssaksóknara þegar viðkomandi leitaði þangað með aðstoð þáverandi starfsmanna Ríkisútvarpsins. Efni úr símanum mínum, sem afhentur var starfsmanni Ríkisútvarpsins í Efstaleiti, rataði þaðan til annarra fjölmiðla og þaðan út í kosmósinn. Annað orð yfir þetta er samkvæmt útvarpsstjóra „verkstæði fjölbreyttra framkvæmda.“ En víkur þá að síðasta atriðinu og tilefni þessa pistils. Það verður nefnilega að hafa í huga þann lúðrablástur sem hófst þegar að samstarfsmennirnir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, Þórður Snær Júlíusson og Aðalsteinn Kjartansson tilkynntu opinberlega haustið 2022 að þeir hefðu kært mig til lögreglu fyrir að hafa í hótun við þá. Tilefnið var langsótt en var annars vegar tveggja ára samtal mitt við félaga minn á Facebook. Sá er meindýraeyðir og ræddum við um meindýr og hælbíta en ekki blaðamenn. Virðist sem þeir kumpánar hafi séð sjálfa sig í þessu samtali, einhverra hluta vegna. Hins vegar byggðu þeir á tölvupósti sem ég sendi á Stefán Eiríksson sumarið 2022 þar sem ég baðst vægðar fyrir helsjúka manneskju sem einhver úr þessum hópi var að áreita með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur aðstandendur viðkomandi. Langt var seilst til að sverta mig, kæla og níða niður, bæði í réttarkerfinu og í fjölmiðlum. Sérstaklega í ljósi þess að í samskiptum mínum, sem þessi sami hópur hefur valsað í frá því í byrjun maí 2021 kemur skýrt fram hvernig ég berst við blaðamenn – með penna í stað sverðs. Enginn þessara kappa hefur haft kjark til að segja frá lyktum kæru þeirra, ekki frekar en Helgi Seljan hefur þorað að segja frá afgreiðslu lögreglu á kæru hans á hendur Jóni Óttari. Ekki nóg með það heldur er það eina sem hefur komið út úr munni þeirra lygi. Þórður Snær Júlíusson, einn kærenda en hann hefur stöðu sakbornings sjálfur, var í viðtali hjá þeim bræðrum Egilssonum ásamt blaðamönnunum Jakobi Bjarnari Grétarssyni og Láru Ómarsdóttur fyrir örfáum dögum. Aðspurður sagði Þórður Snær ekkert að frétta af rannsóknum lögreglunnar á Norðurlandi. Samt var hann með brakandi ferska niðurfellingu á eigin kæru í höndunum. Það sýnir virðingu hans fyrir sannleikanum. Frásögn hans af málinu að öðru leyti er síðan sér kapítuli út af fyrir sig. Og það var afhjúpandi að heyra mann sem hefur mætt í alla fjölmiðla og rantað um „sína“ hlið á því sakamáli sem hann er sakborningur í, setja út á þá aðila sem hafa þó þorað að leyfa rödd brotaþolans að heyrast, og var ekki annað að heyra á Þórði Snæ en að þeir fjölmiðlar hafi brotið gegn samstöðu fjölmiðla með þeim vinnubrögðum, slík slaufun og svifting málfrelsis gagnvart brotaþola í sakamáli er trúlega nánast óþekkt hjá þeim þjóðum sem kenna sig við lýðræði og heyra ritstjóra á framfæri skattborgara játa slík vinnubrögð var afhjúpandi svo ekki sé fastara að orði kveðið. Já, Ríkisútvarpið er svo sannarlega „staður stórra drauma.“ Ásakanirnar, sem þessi stofnun hefur haldið á lofti í heil 12 ár í garð Samherja, og allra þeirra sem tengjast Samherja með einum eða öðrum hætti, eiga fæstar rætur í annað en hugarburð þeirra sem hafa gengið um ganga stofnunarinnar. Er ekki að verða tímabært að Ríkisútvarpið sjálft vakni upp og fari að rækta skyldur sínar eða verði að öðrum kosti fjarlægur draumur… Höfundur er skipstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Páll Steingrímsson Rannsókn lögreglunnar á Akureyri á blaðamönnum Mest lesið Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins skrifar Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson skrifar Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal skrifar Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Jafnréttisstofa í 25 ár: Er þetta ekki komið? Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Hvar er textinn? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Berklar, Krakk og Rough Sleep Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Blóðugar afleiðingar lyga Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhrif Vesturlanda og vöxtur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Alvöru fjárlög fyrir venjulegt fólk Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafa börn frjálsan vilja? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna halda Íslendingar með Dönum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller skrifar Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar Skoðun Hvaða módel ertu? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Sjá meira
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar
Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun