Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2026 14:32 Það er bæði eðlilegt og mikilvægt að tekist sé á um forgangsröðun fjármuna Akureyrarbæjar. Við eigum að ræða hvort við verjum of miklu í einn málaflokk og of litlu í annan, hvort sem um er að ræða skóla, félagsþjónustu, götur, menningu, íþróttir eða aðra innviði. Það er einmitt hlutverk stjórnmálanna að forgangsraða þegar ekki er hægt að gera allt í einu. En slík umræða verður að byggja á heildarmyndinni og réttum forsendum. Í greininni Játningar nýliða, eftir fulltrúa Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar, er því haldið fram að samkvæmt tillögu meirihlutans fari yfir þriðjungur framkvæmdafjár A-hluta Akureyrarbæjar á árunum 2027 til 2030 til KA og Þórs, eða tæpir fjórir milljarðar króna. Talan er stór og það á ekki að draga úr því. Samkvæmt drögum að framkvæmdaáætlun 2027 til 2030 er gert ráð fyrir 900 milljónum króna í framkvæmdir á KA-svæðinu, 80 milljónum í áhorfendabekki í íþróttaheimili KA og 2,9 milljörðum vegna fyrirhugaðs íþróttahúss á Þórssvæðinu. Samtals eru þetta 3,88 milljarðar króna. Þetta eru samt ekki 3,88 milljarðar króna sem Akureyrarbær er að afhenda íþróttafélögunum. Höldum því til haga. Þetta eru fjárfestingar í mannvirkjum og samfélagslegum innviðum á Akureyri. Mannvirkjum sem eru byggð til áratuga og nýtast börnum og ungmennum, skólum, íþróttastarfi, lýðheilsu og félagsstarfi eldri borgara og bæjarbúum öllum. Setjum þessar tölur í samhengi. Á sama tímabili er gert ráð fyrir 1,898 milljörðum króna í framkvæmdir í fræðslu- og uppeldismálum, meðal annars vegna Glerárskóla, Giljaskóla og Síðuskóla, endurbóta á skólalóðum og vegna nýrrar verknámsálmu Verkmenntaskólans. Þá er gert ráð fyrir 665 milljónum króna í framkvæmdir í félagsþjónustu, 840 milljónum í félagslegar íbúðir og 240 milljónum í stofnframlög vegna félagslegra og annarra leiguíbúða. Í uppbyggingu hverfa eru áætlaðir 3,34 milljarðar króna, meðal annars vegna Holtahverfis og Móahverfis. Til annarra gatnaframkvæmda eru ætlaðir 1,805 milljarðar, 1,25 milljarðar til umferðaröryggismála og 745 milljónir til útivistarsvæða og stíga. Heildarfjárfesting A-hluta er 11,298 milljarðar króna á tímabilinu 2027 til 2030 og þegar A- og B-hluti eru teknir saman er framkvæmdaáætlunin 22,656 milljarðar króna. Sveitarfélög eiga að framkvæma þegar þau hafa svigrúmið til þess. Við þekkjum það á öðrum tímum, þegar harðnar í ári, þá draga sveitarfélögin að sér hendur. Safna sér upp innviðaskuld og ná ekki að mæta óskum samfélagsins um betri umgjörð fyrir blómlegra mannlíf. Akureyrarbær hefur, blessunarlega, verið í sókn síðustu ár og markmiðið er alltaf að skila af sér enn öflugra bæjarfélagi. Ég held með bæði KA og Þór. Ég vil svara gagnrýninni sem fram kemur í greininni, vegna þess að ég held bæði með KA og Þór. Held með öflugu íþróttastarfi fyrir börnin okkar og komandi kynslóðir á Akureyri. Við verðum að passa okkur á að stilla íþróttum og menningu ekki upp sem andstæðum. Á undanförnum árum hefur Akureyrarbær ráðist í stór verkefni á sviði menningar. Þar má nefna bæði Hof og umfangsmikla uppbyggingu Listasafnsins á Akureyri. Hvoru tveggja stórar fjárfestingar. Menningarmál hafa því sannarlega ekki setið á hakanum og eiga ekki að gera það. Sveitarfélagið fjárfestir í innviðum vegna þess að þeir skapa verðmæti fyrir samfélagið til langs tíma. Við eigum því ekki að etja menningu og íþróttum gegn hvort öðru, ekki frekar en við eigum að stilla íþróttum upp gegn skólastarfi eða félagsþjónustu. Á mismunandi tímum koma einfaldlega til kastsins stór verkefni í mismunandi málaflokkum. Þetta er því alls ekki saga um bæjarfélag sem hefur ákveðið að setja framkvæmdafé sitt í einungis tvö íþróttafélög. Það sýnir t.d. uppbyggingin hjá Siglingaklúbbnum Nökkva og hjá Skautafélagi Akureyrar. Þetta er saga um ört vaxandi samfélag sem stendur frammi fyrir mikilli og að hluta til uppsafnaðri fjárfestingarþörf í skólum, félagslegum innviðum, íbúðarhverfum, götum, umferðaröryggi, menningu, veitum, höfnum og íþróttamannvirkjum. Getum ekki gert allt fyrir alla alltaf. Að þessu sögðu, þá er að sjálfsögðu ekki hægt að skrifa auða tékka og mæta öllum óskum. Þvert á móti. Við verðum að velja og við verðum að forgangsraða. Stundum þýðir það að verkefnum er frestað. Stundum þarf að áfangaskipta þeim, endurskoða umfang þeirra eða finna hagkvæmari leiðir. Og stundum þarf að taka ákvörðun um að fjárfesta vegna þess að þörfin er orðin brýn og réttlætir kostnaðinn. Þetta á jafnt við um skóla, götur, félagslegt húsnæði, menningu, veitur og íþróttamannvirki. Fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun sýnir okkur svart á hvítu að Akureyrarbær stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum þegar kemur að uppbyggingu bæjarins næstu ár. Þar eru mörg verkefni, margar réttmætar þarfir og, eins og alltaf, takmarkaðir fjármunir til skiptanna. Við þær aðstæður verður meirihlutinn að vera tilbúinn til að verja forgangsröðun sína, hlusta á gagnrýni og breyta þegar betri rök eru lögð á borðið. Þannig tökumst við á, pólitískt og af fullum krafti. Gleymum aldrei heildarmyndinni. Ræðum fjárfestingar sveitarfélagsins út frá henni og með augun á framtíðinni. Gögnin sýna svart á hvítu þá fjármuni sem fara í hin mismunandi verkefni. Gleymum því ekki að Akureyrarbær styður afskaplega vel við menningu og íþróttir, og við velferð og lýðheilsu íbúa. Við höfum reynt að mæta fjölbreyttum þörfum enda sýna allar kannanir að fólkinu okkar finnst gott að búa á Akureyri. Við megum vera stolt af því. Gunnar M. Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akureyri Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun