Skoðun

Hvað viltu verða þegar þú verður stór?

Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar

Ég hef mikið hugsað til ungmenna landsins í allri umræðunni um Pisa, einkunnir, læsi, ólæsi og ég veit ekki hvað og hvað. Pressan á þeim er mikil og almennt er talað eins og ekkert sé nógu gott.

Undanfarin ár hef ég fengið tækifæri til að ræða við þessi ungmenni um lífið og tilveruna, samskipti og sjálfsmynd, hegðun og líðan og veit því að almennt eru þau einmitt nógu góð og vel það.

Hjá mörgum þeirra styttist í einhversskonar tímamót. Útskrift úr grunnskóla, menntaskóla, ný vinna eða búseta fjarri foreldrahúsum er á næsta leiti. Slík tímamót kalla fram blendnar tilfinningar. Eðlilega. Þetta er eitt af þeim skiptum sem við stöndum frammi fyrir fjölbreyttu vali og þurfum að taka stórar ákvarðanir.

Ég er svo heppin að ég er ekki ennþá orðin stór og veit ekki alltaf hvað ég vil vera eða verða. Mér líður allavega oft þannig...og á meðan gerist bara lífið!

Við erum sennilega allmörg sem fengum tár í augun við útskrift úr skóla. Ekki einungis af stolti heldur miklu frekar vegna þess að við vissum ekki hvað við vildum gera næst. Hvaða leið við ættum að velja fyrir fullorðinsárin. Ég er sannarlega ein af þeim. Eftir menntaskóla fannst mér ég þurfa að drífa mig í framhaldsnám hið fyrsta, bara svona af því bara. En sem betur fer hafði ég fyrirmyndir sem bentu mér á að staldra við og anda aðeins djúpt. Skoða valmöguleikana. Ég ákvað því að gefa mér ár til umhugsunar og finna mér vinnu á meðan ég hugsaði málið. Glaðbeitt gekk ég um bæinn og sótti um atvinnu á öllum hugsanlegum stöðum. Nokkrum dögum síðar var ég farin að vinna á prjónastofu fyrir hádegi og á leikskóla eftir hádegi. Ég kunni hvorki að prjóna né umgangast krakkaskott...hélt ég. En fljótlega áttaði ég mig á því að ég hefði óvart ratað á réttan stað í lífinu. Þetta kom mér já mjög á óvart því ég hafði ákveðið nokkrum árum áður að ég og börn ættum ekki samleið! Síðan þá hef ég lært það um sjálfa mig að það sem mér finnst í dag er ekki endilega eins á morgun. Skoðanir manns breytast eftir því sem sjónarhornunum fjölgar og þannig verða önnur tækifæri til.

Eftir nám í leikskólakennarafræðum var ég til dæmis alveg viss um það að sérkennslu myndi ég ekki sinna enda hvorki þolinmóð né úrræðagóð! Við

vitum sum hvernig það fór! Eftir að hafa svo lokið frekara námi í sérkennslufræðum þótti mér ljóst að málþroski væri eitthvað sem ég myndi sérhæfa mig í en einhverfa væri annarra; ég hefði ekki hvorki getu né forsendur til að huga að slíku. Við vitum líka mörg hvernig það fór! Ég er sem sagt eitthvað allt annað í dag en ég hafði séð fyrir mér. Reyndar ætlaði ég framan af að vera leikari á fjölum Þjóðleikhússins og við vitum nú öll hvernig það fór!!

Ég vil því bara segja við ungmennin okkar: það er sama hvort aðrir segi að við séum A eða B, 6 eða 7 og tunglið sé í áttunda húsi Vatnsberans og við í ósamstæðum sokkum: það er ekki það sem skilgreinir þig. Þú hefur val um hvaða leið þú ferð. Það er án efa mikilvægt að staldra við og velta fyrir sér hvaða leið er líklegust til að verða þér og þínu nánasta fólki til farsældar. Við megum auðvitað ekki gleyma okkur og láta draga okkur út í einhverja vitleysu!

En...hvaða vali sem þú stendur frammi fyrir í þessari blessuðu veröld, þar sem þú getur verið hvað sem er, veldu allavega alltaf að vera góð manneskja því það mun koma þér á þína réttu slóð.

Höfundur er sérkennari/kennsluráðgjafi og er tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna 2026.




Skoðun

Sjá meira


×