Gwyneth Paltrow hefur leikið í stórmyndum á borð við Iron Man og Avengers en undanfarin ár hefur heilsan verið henni hugleikin. Hún rekur lífsstílsmerkið Goop og er þekkt fyrir að leita nýstárlegra og óhefðbundinna leiða þegar það kemur að lífsstíl og heilsu.
Hér má sjá uppskrift Jönu af þeytingnum:
„Gwyneth Paltrow bláberja- og engifer þeytingur
Fyrir 1
* 1 bolli frosin bláber
* 1,5 bolli jurtamjólk
* ½ bolli frosið avókadó
* 1 msk collage duft (valfrjálst)
* 1 skeið óbragðbætt hreint próteinduft að eigin vali
* 1- 2 döðlur, steinlausar
* Safi úr 1 límónu
* Vænn bútur, ferskt engifer, hreinsað
Aðferð:
1. Setjið allt hráefnið saman í góðan blandara og blandið vel saman
2. Hellið í hátt glas og berið fram
3. Drekkið og njótið“