Þau fengu Íslensku bókmenntaverðlaunin Lovísa Arnardóttir skrifar 31. janúar 2024 20:57 Frá vinstri eru á myndinni Eva Björg Ægisdóttir, Rán Flygenryng, Gunnar Helgason, Haraldur Sigurðsson og Steinunn Sigurðardóttir Mynd/Lárus Karl Ingason Steinunn Sigurðardóttir hlaut í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Ból. Eva Björg Ægisdóttir hlaut Blóðdropann fyrir bók sína Heim fyrir myrkur. Gunnar Helgason og Rán Flygenryng hlutu verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bók sína Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa.
Haraldur Sigurðsson hlaut verðlaun í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fyrir bók sína Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Útgefandi: Sögufélag. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti bæði Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin voru afhent á Bessastöðum í kvöld. Á myndinni eru allir vinningshafar kvöldsins ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni og menningarráðherra Lilju D. Alfreðsdóttur. Mynd/Lárus Karl Ingason Verðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Nýr verðlaunagripur, Blængur, blásvartur hrafn steyptur í kopar, eftir myndlistarmanninn Matthías Rúnar Sigurðsson, var afhentur verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrsta sinn. Steinunn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka fyrir bók sína Ból. Í umsögn dómnefndar um Ból segir: „Ból er efnismikil saga þrátt fyrir að bókin sé ekki ýkja löng. Viðfangsefnið er ástin í öllum sínum fjölbreyttu myndum, en líka missir, tengsl og tengslaleysi, hvort sem er við sjálfa sig eða aðra, umhverfi sitt og náttúru. Ferðalag söguhetjunnar rammar inn frásögnina sem um leið verður innri ferð hennar og uppgjör við lífið. Það er margt sem kraumar undir, líkt og í náttúrunni sem býr sig undir að gjósa, en ferðinni er heitið heim í unaðsreit fjölskyldunnar, Ból, sem er um það bil að verða náttúruöflunum að bráð. Steinunn vefur blæbrigðaríkan textavef sem heldur lesandanum föngnum allt frá upphafi, sagan snertir við honum og tilfinningarnar malla lengi eftir að lestrinum lýkur. Hið ósagða er oft jafn afhjúpandi og það sem sagt er og, líkt og í fyrri verkum Steinunnar, er leikandi írónía í bland við myndríka ljóðrænu einkennismerki textans. Þótt Ból sé að vissu leyti heimsendasaga ræður fegurðin för og það er hún sem situr fastast eftir.“ Eva Björg Ægisdóttir hlaut Blóðdropann fyrir bók sína Heim fyrir myrkur. Í umsögn dómnefndar um Heim fyrir myrku segir: „Heim fyrir myrkur er grípandi sálfræðitryllir sem erfitt er að leggja frá sér. Andrúmsloft óhugnaðar og dulúðar er listilega byggt upp og grunsemdum og efa sáð jöfnum höndum í huga lesanda. Sögusviðið er lifandi og vel er unnið úr sögulegum atburðum í bakgrunni frásagnarinnar. Þessi samfélagslegi vinkill, sem snertir á sögu vistheimila á Íslandi, er fléttaður við fjölskyldudrama og hversdagslíf ungs fólks í borgfirsku dreifbýli upp úr miðri síðustu öld og úr verður sannfærandi og afar spennandi frásögn með fjölbreyttu og breysku persónugalleríi. Frásagnaraðferðin er áhugaverð og ísmeygilega unnið með fyrstu persónu sjónarhorn söguhetju sem berst við að ráða í atburði, drauma og flókinn veruleika í nútíð og fortíð um leið og lesandinn berst við hrollinn sem læðist að honum og grípur hann sífellt fastari tökum.“ Rán Flygenryng og Gunnar Helgason fengu verðlaun fyrir bók sína Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa. Í umsögn dómnefndar um Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa segir: „Í þessari þriðju bók í seríunni um Alexander er tekist á við stórar spurningar eins og titillinn ber með sér. Stríðsátök, sorg og missir eru í brennidepli en sagan hverfist um nýjan félaga Alexanders, Vola frá Úkraínu. Þessi flóknu málefni eru tækluð með húmor og hlýju þar sem sjónarhorn barnsins ræður för og lesandinn verður virkur þátttakandi í vangaveltum Alexanders. Þar tvinnast vel saman alþjóðlegur atburður og áhrif hans á líf venjulegs fólks á átakasvæðinu og hér heima á Íslandi. Þrátt fyrir grafalvarlegt söguefnið einkennist sagan af leiftrandi frásagnargleði, sem fjörlegar myndir Ránar Flygenring ýta svo enn frekar undir. Eins og í fyrri bókunum er persónusafnið fjölbreytt og litríkt og atburðarásin er spennandi. Bannað að drepa er bók sem er skrifuð af skilningi á hugarheimi barna og virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins. Hún veitir ekki endilega einhlít svör við öllum spurningum en býður svo sannarlega upp á lifandi samræður barna og fullorðinna sem lesa hana saman.“ Haraldur hlaut verðlaun í flokki fræðibóka. Í umsögn dómnefndar um Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Útgefandi: Sögufélag segir: „Samfélag eftir máli er yfirgripsmikið verk um sögu og þróun skipulagsmála á Íslandi, einkum í Reykjavík. Ritið byggir á langri og ítarlegri rannsóknarvinnu höfundar, framsetningin er aðgengileg og textinn einkar lipur. Skipulagsfræðin eru sett í samhengi við hugmyndasögu hvers tíma, svo og atvinnu- og lýðræðisþróun, einkum á vesturlöndum, og vísanir í íslenskar og alþjóðlegar bókmenntir og listir þétta verkið og gefa því breiðari skírskotun. Höfundur segir hlutlægt frá, en er gagnrýninn á stefnur og strauma og minnir lesendur oft á að engin algild sannindi eru til í þessum fræðum. Samfélag eftir máli er afar áhugaverð bók um manngert umhverfi okkar, sem skiptir sköpum fyrir samfélagsþróunina, umhverfismál og persónulega líðan okkar allra. Hún á erindi jafnt til fagfólks og almennings, er fagurlega hönnuð og ljóst að hugað er að umhverfisþáttum við gerð hennar.“ Tuttug bækur tilnefndar Forseti Íslands setti samkomuna sem sjónvarpað var í beinni útsendingu á RÚV. Því næst flutti Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti Þá flutti Katrín Halldóra Sigurðardóttir tvö lög við undirleik Hjartar Yngva Jóhannssonar. Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu þau Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Kristín Ingu Viðarsdóttir, sem var formaður nefndarinnar. Hægt er að lesa sér meira til um verðlaunin og tilnefningarnar á vef Félags íslenskra bókaútgefenda.
Bókmenntir Íslensku bókmenntaverðlaunin Menning Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Mest lesið Crawford minnist sonarins Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira