Fulltrúi barnaverndar kom Snædísi til bjargar Jakob Bjarnar skrifar 8. febrúar 2024 13:35 Snædís hefur lifað erfiðu og viðburðarríku lífi. Hún var orðin fjögurra ára þegar hún sá hvítan mann fyrsta sinni, hún gerði tilraun til sjálfsvígs en söðlaði svo um og sneri sér að matreiðslu með frábærum árangri. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, matreiðslumeistari og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, er fædd á Filippseyjum og hún hefur lifað tímana tvenna.
Foreldrar hennar eignuðust hana mjög ung og móðir hennar flutti án hennar til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára sótti móðir hennar hana og þær hófu nýtt líf saman á Íslandi. Nýja lífið á Íslandi gekk ekki alveg sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi Barnaverndar á Dalvík gekk henni í móðurstað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu. Snædís er gestur Einars Bárðar í nýjasta þættinum af Einmitt og þar ræða þau æsku hennar og hvernig hún lenti í matreiðslu og alla leið á Ólympíuleikana í matreiðslu sem þjálfari Íslenska landsliðsins. Íslenska kokkalandsliðið er um þessar myndir í Þýskalandi að keppa á Ólympíuleikunum í matreiðslu. Snædís var fyrirliði landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg 2018, hún var fyrirliði landsliðsins á Ólympíuleikunum í Stuttgart árið 2020 þegar Ísland náði 3. sæti, sem er besti árangur Íslands til þessa, og nú er Snædís þjálfari landsliðsins sem lauk keppni á Ólympíuleikunum í vikunni og jafnaði sinn besta árangur. Sá hvítan mann í fyrsta skipti fjögurra ára Eins og áður sagði fæddist Snædís á Filippseyjum og fljótlega eftir fæðinguna flutti móðir hennar til Íslands til að hefja nýtt líf með íslenskum manni. Fjórum árum eftir fæðinguna kom móðir hennar aftur til Filippseyja og tók hana með sér til Íslands. Íslenski maðurinn kom með móður hennar að sækja Snædísi og það var þá sem Snædís sá hvítan mann í fyrsta skipti. Nýja lífið með mömmu hennar á Íslandi gekk aldrei alveg sem skildi en mæðgurnar áttu erfitt með að finna taktinn saman í þessu nýja og framandi umhverfi. „Foreldrar mínir voru alltof ung þegar þau eignuðust mig. Ég var ekki hluti af þeirra plönum en þarna voru engar getnaðarvarnir og svo voru þau kaþólsk og fóstureyðingar ekki í boði. Þegar ég var tveggja ára kynntist móðir mín íslenskum manni á Filippseyjum. Ég kem úr fátækri fjölskyldu og lífsbaráttan var hörð á Filippseyjum,“ segir Snædís. Móðir hennar fór og skildi hana eftir á Filippseyjum þangað til hún varð fjögurra ára. Lífið á Íslandi fyrstu árin var mjög erfitt, hún féll ekki inn í samfélagið og heimilisaðstæður voru erfiðar. Það endaði með afskiptum Barnaverndar sem flutti hana á fósturheimili. Fósturheimilin urðu nokkur og voru misjöfn og Snædís átti erfitt með að venjast þeim. Bjarvætturinn hjá Barnavernd Segja má að þessir erfiðleikar hafi náð hámarki þegar Snædís var flutt á sjúkrahús eftir misheppnaða tilraun til sjálfsvígs í 10. bekk. Eftir það átti að fara með Snædísi á Stuðla en þá steig Eyrún Rafnsdóttir starfsmaður Barnaverndar inn og beinlínis tók Snædísi að sér. Eyrún hafði haft umsjón með Snædísi um nokkurt skeið og þekkti orðið vel til hennar. Snædís segist eiga henni gríðarlega mikið að þakka og í dag kallar Snædísi hana móður sína og fjölskylda Eyrúnar er hennar fjölskylda. „Synir hennar og Ingvars mannsins hennar eru bræður mínir. Blóðmóðir mín býr rétt hjá þeim og ég held ágætu sambandi við hana í dag en það var ekki lengi.“ Hún segist einnig vera í góðu sambandi við Jón sem gekk henni í föðurstað þegar hún var fjögurra ára og er honum mjög þakklát. „Ég er heppin að hafa ekki lent á götunni eða í einhverju rugli og er þakklát Eyrúnu fyrir það sem hún gerði fyrir mig,“ segir Snædís.Hér er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir getur hringt í Pieta-samtökin. Píeta síminn er opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Samfélagsmiðlar Matarást Kokkalandsliðið Barnavernd Tengdar fréttir Flókin æska leiddi hana á vit ævintýra Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður er einn af liðsmönnum kokkalandsliðsins. Hún er fædd á Filippseyjum en kom ung til Íslands þar sem hún þvældist á milli fósturheimila fyrstu árin. Snædís á óvenjulegt líf þótt ung sé. 27. júlí 2018 08:00 Mest lesið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Bíó og sjónvarp Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Lífið Fleiri fréttir Jay Leno illa leikinn og með lepp Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni á Kýpur Mikill sigur að geta opnað aftur í Kringlunni Átta ár án áfengis og fíkniefna Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Heitasti partýljósmyndari Reykjavíkur stefnir langt Dularfull tíst Dylans vekja furðu Eldræða Sölku Sólar í ráðhúsinu Flotinn og amma Andrea hlutu viðurkenningu Barnaheilla Myndir: Þungt yfir stjörnunum við jarðarför Payne Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Snerti taug leikstjóra Forrest Gump á Kjarvalstofu Ása Steinars og Leo keyptu einbýli í Garðabæ Elín Metta og Sigurður eignuðust stúlku Liam Payne lagður til hinstu hvílu „Finnst þér þetta litlir kjúklingavængir í höndunum á mér?“ Ótrúlegur kvöldmatur Bergs Ebba: „Þetta er gott fyrir heilann“ Hvernig hætti ég að feika það? Fer að sofa klukkan fjögur og getur sveiflast um þrjátíu kíló Sér eftir því að hafa látið stækka á sér rassinn Heiðdís Rós fann ástina í örmum bílasala í New York Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum Sjá meira
Flókin æska leiddi hana á vit ævintýra Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður er einn af liðsmönnum kokkalandsliðsins. Hún er fædd á Filippseyjum en kom ung til Íslands þar sem hún þvældist á milli fósturheimila fyrstu árin. Snædís á óvenjulegt líf þótt ung sé. 27. júlí 2018 08:00