Innlent

Hér getur þú séð hvort ein­hver ó­boðinn sé skráður í þinni í­búð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár Íslands.
Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár Íslands. Sigurjón Ólason

„Hver býr í eigninni minni?“ kallast átak sem Þjóðskrá Íslands hefur hleypt af stað í því skyni að leiðréttar rangar lögheimilisskráningar. Eigendur húseigna geta núna í gegnum heimasíðu Þjóðskrár flett upp á því hverjir eru skráðir þar til heimilis og tilkynnt um ranga skráningu.

Samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár eru einstaklingar með lögheimili á Íslandi núna orðnir 400 þúsund talsins. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom hins vegar fram að raunverulegur fjöldi íbúa er talinn talsvert lægri þar sem einstaklingar hafi ríkari hvata til að skrá sig inn í landið heldur en út. Misræmið er talið vera allt að fjórtán þúsund manns.

Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár Íslands, segir að stofnunin vilji freista þess að leiðrétta tölurnar með nýju átaki, sem kallast „Hver býr í eigninni minni“. Þar geta þinglýstir eigendur íbúða flett upp hver býr í þeirra eign og tilkynnt um ranga skráningu þeirra sem ekki búa þar.

„Og ef þeir telja að einhver sé með skráð lögheimili í þeirra eignum sem ekki búi þar geta þeir tilkynnt okkur það með einföldi haki, haka við, og þá förum við í svokallað frumkvæðismál og athugum hvar þetta fólk býr raunverulega.

Þannig að þetta teljum við vera aðalmálið kannski sem við getum gert í að reyna að leiðrétta bækurnar,“ segir Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár, í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Á heimasíðu Þjóðskrár kemur fram að rétt á skráningu lögheimilis á tilteknu heimilisfangi eigi sá sem hafi þar bækistöð sína, dveljist þar að jafnaði í tómstundum sínum, hafi þar heimilismuni sína og sé hans svefnstaður þegar hann sé ekki fjarverandi um stundarsakir.


Tengdar fréttir

Yfir 400 þúsund íbúar núna skráðir á Íslandi

Fjöldi skráðra einstaklinga með lögheimili á Íslandi er kominn í fjögurhundruð þúsund, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Raunverulegur mannfjöldi á Íslandi er þó talinn eitthvað lægri.

Íbúar á Íslandi talsvert færri en áður var talið

Nýtt mat Hagstofu Íslands á íbúafjölda hér á landi hefur leitt í ljós að íbúar eru talsvert færri en opinberar hagtölur hafa bent til. Þar af leiðandi hefur hagvöxtur á mann verið meiri á síðastliðnum árum en opinberar hagtölur benda til og verðmætasköpun á mann er orðin hin sama og fyrir faraldur þvert á niðurstöður opinberra hagtalna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×