Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Atli Ísleifsson skrifar 13. mars 2024 10:17 Fimmta hver íbúð á Suðurnesjum er leiguíbúð sem skráð er í leiguskrá HMS. Vísir/Vilhelm Suðurnes hafa að geyma hlutfallslega fleiri leiguíbúðir í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en nokkur annar landshluti. Fimmtungur íbúða í landshlutanum er skráður í leiguskrá.
Frá þessu segir á vef HMS, en í síðustu viku var sagt frá því að um 20.500 virkir samningar hafi verið í leiguskrá á landinu um síðustu mánaðarmót. Þeim hefur svo fjölgað um hundrað síðan þá. „Um þrír af hverjum fjórum leigusamningum í leiguskrá eru á höfuðborgarsvæðinu en rúmlega 15 þúsund samningar eru skráðir á höfuðborgarsvæðinu. Kortið hér að neðan sýnir fjölda leigusamninga eftir landshlutum þar sem næstflestu skráðu samningarnir eru á Suðurnesjum eða 2.400 talsins. Á Norðausturlandi eru tæplega 1.000 samningar skráðir. HMS Fjöldi samninga í leiguskrá samsvarar um 13% af heildarfjölda íbúðarhúsnæðis í landinu, en hlutfall íbúða í hverjum landshluta sem eru í leiguskrá er undir því hlutfalli í öllum landshlutum að Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu frátöldu. Fimmta hver íbúð á Suðurnesjum er leiguíbúð sem skráð er í leiguskrá HMS. Á höfuðborgarsvæðinu eru rúm 15% allra íbúða skráðar í leiguskrá. Lægst er hlutfallið á Norðvesturlandi og Vestfjörðum. Hlutfallið í öðrum landshlutum er á bilinu 5-8%. HMS Líkt og HMS hefur áður greint frá bendir nýjasta lífskjarakönnun Hagstofu til þess að heimili á leigumarkaði hér á landi séu um 34 þúsund talsins, eða um 21% af öllu íbúðarhúsnæði á landinu. Náist markmið HMS um að leiguskrá spanni 80% af leigumarkaði munu um 17% alls íbúðarhúsnæðis vera í leiguskránni. Með breytingum á lögum sem tóku gildi í byrjun síðasta árs var HMS falið að hafa eftirlit með leigumarkaðnum en enginn hafði það hlutverk áður með höndum. Síðan þá hefur verið gert átak til að fá leigufélög til að skrá útleigueignir sínar og nú þegar er að finna 23 þúsund samninga í skránni, þar af um 20 þúsund virka samninga. Hlutfallslega lítið er þó af leigusamningum í nýrri leiguskrá þar sem leigusalar eru einstaklingar, þar sem þeir eru ekki skráningarskyldir samkvæmt lögum um húsnæðismál“ segir á vef HMS.
Leigumarkaður Húsnæðismál Reykjanesbær Suðurnesjabær Vogar Grindavík Mest lesið Rannveig hættir í Seðlabankanum Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Viðskipti innlent Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Viðskipti innlent Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Viðskipti innlent Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Viðskipti innlent Ýmir Örn fer frá N1 Viðskipti innlent Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni Neytendur Þrjú þúsund krónur fyrir ferð í parísarhjólið Neytendur Fleiri fréttir Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Hundrað manna hjúkrunarheimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti Taka tvö í Vesturbugt Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó Jón nýr forstjóri Veritas María Björk tekur við af Orra Vinna eins og hakkarar en eftir skýrum reglum Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán Íslensk ferðaþjónusta verði að vaxa í sátt við samfélagið Wok On gjaldþrota Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar Sjá meira