Þess í stað leita leiðtogar flokksins nú leiða til að fá saksóknara til að ákæra Biden, son hans og jafnvel aðra fyrir meinta glæpi.
Þingmenn hafa sent saksóknurum bréf þar sem þeir síðarnefndu eru hvattir til að rannsaka mál sem tekin hafa verið fyrir af þingmönnunum.
Demókratar hafa sagt að rannsókn Repúblikana þjóni eingöngu þeim tilgangi að auðvelda kosningabaráttu Trumps. Forsetinn fyrrverandi hefur þrýst mjög á Repúblikana að ákæra Biden fyrir embættisbrot en Trump var tvisvar ákærður. Þeir segja Repúblikana vilja grafa undan alvarleika þess að vera ákærður fyrir embættisbrot og að verið sé að nota þingið til að reyna að setja Trump og Biden á sama stall í augum kjósenda fyrir kosningarnar á næsta ári.
Sjá einnig: Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden
Í frétt New York Times segir að með því að leita til saksóknara séu Repúblikanar að leita leiða til að bjarga andlitinu í sama mund og þeir binda enda á þeirra eigin rannsókn. Þá er það í takt við ummæli Donalds Trump um að hann myndi lögsækja Biden verði hann kjörinn forseti aftur.
Meðal þess sem kemur til greina að benda saksóknum á er að rannsaka viðskipti Hunters Biden, sonar forsetans, á erlendri grundu. Þá kemur til greina, samkvæmt þingmanni sem blaðamaður NYT ræddi við, að rannsaka ásakanir um að Biden hafi staðið í vegi réttvísinnar.
Jim Jordan, sem leitt hefur rannsóknina, staðfesti einnig að verið væri að skoða að vísa rannsókninni til saksóknara. James Comer, annar leiðtogi rannsóknarinnar, sló á svipaða strengi í viðtali á Fox á dögunum.
Í grein NYT segir að þessi umræða hafi fyrst litið dagsins ljós meðal Repúblikana á þingi eftir að Comer fundaði með Trump í Flórída í síðasta mánuði.
Naumur meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni gerir líkurnar á því að ákæra gegn Biden verði samþykkt mjög litlar.
Rannsókn Repúblikana er þó ekki lokið enn. Búið er að boða til opins nefndarfundar í næstu viku, þar sem fyrrverandi viðskiptafélagar Hunters munu svara spurningum þingmanna. Hunter sjálfur hefur neitað að mæta.
Lögmaður hans svaraði boði Repúblikana á þá leið að Hunter hefði ekki áhuga á að taka frekari þátt í „sirkussýningu“ þeirra. Hunter sat fyrir svörum þingamanna Repúblikana í um sjö klukkustundir á lokuðum fundi í síðasta mánuði.
Reiddu á mann sem er ákærður fyrir lygar
Repúblikanar hafa varið mörgum mánuðum og jafnvel árum í að rannsaka Hunter og Joe Biden. Þeir hafa ítrekað haldið því fram að Joe Biden hafi hagnast á viðskiptum Hunters á erlendri grundu og tekið við mútum gegnum fjölskyldumeðlimi sína.
Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa þó ekki getað fært sannanir fyrir ásökunum þeirra og hafa þeir gert tilraunir til óheiðarlegrar framsetningar á meintum vísbendingum þeirra.
Þá hefur David Weiss, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, haft Hunter til rannsóknar og hefur hann ákært hann fyrir skattsvik og fyrir að hafa logið á eyðublaðið vegna byssukaupa, þar sem hann hakaði við að hann væri ekki í neyslu, sem var ekki rétt.
Wiess hefur einnig ákært Alexander Smirnov, fyrrverandi uppljóstrara Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) fyrir að ljúga að útsendurum stofnunarinnar um feðgana og að þeir hafi hvor fengið fimm milljónir dala frá eigendum úkraínska orkufyrirtækisins Burisma.
Ásakanir Smirnovs hafa verið hornsteinn í rannsókn Repúblikana. Háttsettir þingmenn flokksins í báðum deildum Bandaríkjaþings hafa notað ásakanir Smirnovs á opinberum vettvangi og ítrekað lýst honum sem „trúverðugu vitni“.