Innlent

Gera Ísraelum að af­stýra hungur­sneyð á Gasa

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Alþjóðadómstóllinn hefur gert Ísrael að hleypa hjálpargögnum og mannúðaraðstoð inn á Gasa, svo afstýra megi hungursneyð.
Alþjóðadómstóllinn hefur gert Ísrael að hleypa hjálpargögnum og mannúðaraðstoð inn á Gasa, svo afstýra megi hungursneyð. AP/Fatima Shbair

Alþjóðadómstóllinn hefur skipað Ísrael að leyfa óheft flæði hjálpargagna og mannúðaraðstoðar inn á Gasa, svo koma megi í veg fyrir hungursneyð. 

Ákvörðun dómstólsins var einróma, og felur í sér að Ísrael skuli án tafar haga málum með þeim hætti að hægt verði að koma gögnunum og mannúðaraðstoð inn á svæðið. Að öðrum kosti muni hungursneyð skapast á Gasa á næstu vikum. 

Ísraelsmenn hafa ítrekað verið sakaðir um að hefta aðgang hjálparstofnana að svæðinu, en segja að slíkar ásakanir eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Segja Hamas um að kenna

Í viðbrögðum við niðurstöðu dómstólsins sagði ísraelska utanríkisráðuneytið að það væri sífellt að „vinna að framgangi nýrra verkefna og stækkun þeirra sem fyrir eru“ svo koma mætti hjálpargögnum inn á Gasa í lofti, á landi og á sjó. Það gerði ríkið í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar.

Í yfirlýsingu ráðuneytisins var einnig sagt að Hamas væri um að kenna hvernig komið væri fyrir íbúum á Gasa. Vísar ráðuneytið þar til hryðjuverkaárásar Gasa á Ísrael 7. október síðastliðinn, en síðan þá hafa Ísraelar staðið í stórtækum hernaðaraðgerðum á Gasa. 

Á síðustu mánuðum hafa myndast langar raðir flutningabíla og trukka við landamæri Gasa og Egyptalands, og Ísraels. Það er vandamál sem Ísraelsmenn hafa verið sakaðir um að hafa skapað með því að láta bílstjóra bílanna undirgangast handahófskenndar og flóknar skoðanir á bílum sínum. 

Á móti hafa Ísraelsmenn sagt að Hamas-samtökin hirði stóran hluta þeirra gagna sem komist yfir landamærin, og sagt Sameinuðu þjóðirnar vera að bregðast hlutverki sínu í að deila gæðunum sem eftir verða til almennra borgara. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×