Innlent

Enginn hand­tekinn enn og lög­regla þögul sem gröfin

Árni Sæberg skrifar
Starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar sóttu spilakassafé á Videomarkaðinn í Hamraborg áður en þeir fóru á Catalinu hinum megin við götuna í sömu erindagjörðum. Þar létu þjófarnir til skarar skríða.
Starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar sóttu spilakassafé á Videomarkaðinn í Hamraborg áður en þeir fóru á Catalinu hinum megin við götuna í sömu erindagjörðum. Þar létu þjófarnir til skarar skríða. Vísir/arnar

Enginn hefur enn verið handtekinn í tengslum við ránið í Hamraborg á mánudag síðustu viku. Lögregla segir rannsókn málsins í gangi en heldur spilunum annars þétt að sér.

Þjófar sem höfðu á þriðja tug milljóna króna á brott úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi að morgni mánudagsins 25. mars síðastliðins leika enn lausum hala.

„Það er ekki búið að handtaka neinn enn þá, nema fólkið sem átti bílinn,“ segir Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð þrjú, í samtali við Vísi. Kona sem á Yaris-bifreiðina sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti hennar við lögreglu.

Hún hafi haft sambandi við lögreglu þegar lýst var eftir bílnum en sérsveitarmenn hafi samt sem áður handtekið kærasta hennar og látið hann dúsa í fangaklefa lengi vel.

Að öðrum leyti segist Gunnar ekkert geta sagt til um málið annað en að það sé í rannsókn. Hann gefur ekkert upp um það hvort lögregla hafi nokkurn grunaðan um verknaðinn eða hvort fjármunirnir séu fundnir.


Tengdar fréttir

Svipar til gamalla óupplýstra rána

Þjófarnir tveir, sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna á mánudagsmorgun, ganga enn lausir. Peningarnir eru þá enn ófundnir þó töskurnar sjö, sem þá geymdu, hafi fundist. Ránið er eitt nokkurra þaulskipulagðra rána í Íslandssögunni og eru nokkur líkindi með þeim. 

Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu

Lögregla leitar enn að tveimur þjófum sem stálu tugum milljóna króna úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í fyrradag. Þónokkrar vísbendingar hafa borist en lögregla virðist engu nær. Forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, sem á féð, er verulega brugðið og reiknar með að verklagi verði breytt vegna málsins.

Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði

Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið. Afbrotafræðingur segir mjög mikilvægt að málið verði upplýst, svo þeim skilaboðum verði komið á framæri að rán sem þessi borgi sig ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×