Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Árni Sæberg skrifar 12. apríl 2024 15:34 Fólkið var ekki ánægt með ferðina. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Adam Burn/Getty Par sem krafðist þess að ferðaskrifstofa endurgreiddi því á fjórða hundrað þúsund króna vegna ferðar og skaðabóta vegna útlags kostnaðar fær ekki krónu úr hendi ferðaskrifstofunnar. Parið fór heim úr ferðinni þar sem það gat ekki hugsað sér að rekast á dónalegan fararstjórann.
Í úrskurði Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa segir að samkvæmt gögnum málsins hafi fólkið fest kaup á ferðatengdri þjónustu af ferðaskrifstofunni. Það hafi greitt 354.528 krónur fyrir pakkaferð dagana 27. júní til 7. júlí árið 2022 og innifalið í verðinu hafi verið flug og gisting í tíu nætur á hóteli með morgunverði. Af kvörtun yrði ráðið að fólkið hafi verið óánægt með hina keyptu ferð og ráðfært sig því við fararstjóra á vegum ferðaskrifstofunnar. Hafi það meðal annars innt eftir því hvort unnt væri að gera breytingar á ferðatilhöguninni með flutningi á hótel á öðrum stað. Hafi fararstjóri upplýst fólkið að það væri aðeins hægt með nokkrum tilkostnaði. Þann 28. júní 2022 hafi fólkið og fararstjórinn síðan rætt saman símleiðis. Óviðurkvæmileg ummæli Að sögn fólksins hafi fararstjórinn viðhaft óviðurkvæðileg ummæli um annað þeirra. Í kjölfarið hafi þau bæði sem og foreldrar þeirra sett sig í samband við ferðaskrifstofuna og óskað eftir að þau yrðu færð í aðra ferð á vegum skrifstofunnar enda hafi þau hvorki getað hugsað sér að eiga í frekari samskiptum við fararstjórann né átt á hættu að rekast á hann á ferðalagi þeirra. Ferðaskrifstofan hafi boðið þeim að færa sig á annað hótel gegn greiðslu að fjárhæð 250.000 krónur. Þeim hafi þótt það boð ófullnægjandi og því ákveðið að bóka annað hótel og flug sjálf og ljúka ferðalagi sínu á eigin vegum. Þau byggi kröfu sína á hendur ferðaskrifstofunni á því að hún beri ábyrgð á háttsemi fararstjórans og framkomu hans í garð þeirra. Hafi háttsemi viðkomandi falið í sér verulega vanefnd á framkvæmd pakkaferðarinnar, sem hafi heimilað þeim að rifta fyrirvaralaust samningi aðila. Jafnframt telji þau sig eiga rétt á afslætti sem nemi heildarkaupverði ferðarinnar. Þá hafi þau krafist skaðabóta vegna útlagðs kostnaðar að fjárhæð 355.036 krónur vegna kaups á nýju flugi til Íslands, hóteligistingu og ferðum. Vildu ekki nýja ferð og yfirgáfu hótelið Ferðaskrifstofan hafi vísað til þess að fólkið hafi sjálft bókað og greitt fyrir hina umþrættu ferð í gegnum vefsíðu ferðaskrifstofunnar. Þegar þau hafi komið á áfangastað hafi þau orðið ósátt við það að vera ekki á líflegri stað og því ítrekað óskað eftir því að vera færð á hótel á öðrum stað. Ferðaskrifstofan hafi kveðist hafa reynt að komast til móts við óskir fólksins með tilheyrandi kostnaði og vinnu en tillögur hennar ekki hugnast fólkinu. Hafi þeim þá verið boðið nýtt tilboð í ferð á öðrum stað enda hafi ekki verið unnt að endurgreiða pakkaferðina samkvæmt skilmálum ferðaskrifstofunnar. Það hafi fólkið hins vegar ekki þegið og yfirgefið hótelið að eigin frumkvæði 1. júlí 2022. Sammála því að ummælin hafi verið óviðeigandi Í niðurstöðu nefndarinnar segir að nefndin taki undir það með fólkinu ummæli fararstjórans hafi verið óviðeigandi og óviðurkvæmileg. Um hafi verið að ræða brot á gagnkvæmri tillitsskyldu aðila í samningssambandi og þar með vanefnd á þeim skuldbindingum sem leiða af lögum um pakkaferðir. Á hinn bóginn verði ekki talið að uppfyllt hafi verið skilyrði laganna til þess að rifta samningnum, meðal annars í ljósi þess að ekki hafi verið fullreynt milli aðila hvort ráða hefði mátt bót á vanefndunum með viðeigandi hætti, auk þess sem hlutverk fararstjórans hafi verið takmarkað í ferðinni. Verði því að hafna þeim kröfum fólksins sem reistar eru á því að því hafi verið heimilt að rifta samningnum. Með vísan til laganna telji nefndin að ekki geti komið til beitingar afsláttar í þessu tilviki. Ef ferðaskrifstofan hefði ekki getað útvegað annan fararstjóra hefði fólkið getað fengið afslátt sem næmi skorti á þeirri þjónustu á ferðatímanum, en það hafi kosið að rifta samningnum án þess að uppfyllt væru skilyrði til þess. Loks hafi ekki verið gerð krafa um ófjárhagslegar bætur í málinu. Í ljósi framangreinds væri óhjákvæmilegt annað en að hafna kröfum sóknaraðila. Veistu meira um málið? Sendu okkur endilega ábendingar á ritstjorn@visir.is eða netfang blaðamanns.
Ferðalög Neytendur Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Fleiri fréttir Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar „Græni punkturinn“ allt að helmingi dýrari en í Bónus og Prís Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Salmonella í Pekingönd Matvara hækkar með rykk eftir tveggja mánaða lækkun Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Spá minnstu verðbólgunni í þrjú ár Nánast allir íbúar með aðgang að sérkjörum Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Brúðhjónin fóru í hart og fá nýja skál fyrir hrærivélina Sjá meira