Menning

Þessi voru til­nefnd til barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­launa Norður­landa­ráðs

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hildur Knútsdóttir, Tómas Tómas Zoëga og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttir fengu tilnefningu til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024.
Hildur Knútsdóttir, Tómas Tómas Zoëga og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttir fengu tilnefningu til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. SAMSETT

Fjórtán norrænar myndabækur, barnabækur og unglingabækur eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Þær íslensku bækur sem fengu tilnefningu voru Hrím eftir Hildi Knútsdóttur og Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur myndhöfund. 

„Í mörgum af þeim verkum sem tilnefnd eru í ár er fjallað um tilvistarlegar spurningar er varða lífið og dauðann. Annað endurtekið þema eru tengsl manneskjunnar við náttúruna. Tilkynnt verður um verðlaunahafann hinn 22. október.

Bækurnar sem tilnefndar eru í ár koma frá öllum norrænu löndunum og málsvæðunum. Bækurnar fjalla um erfiðleika sem börn og ungmenni glíma við s.s. fjarverandi foreldra, einelti og einsemd en einnig stærri samfélagsleg vandamál á borð við ofbeldi, stríð og flótta. 

Einnig er snert á yfirráðum manneskjunnar yfir náttúrunni, smæð hennar og ábyrgð en einnig því hvernig náttúran er vettvangur leiks og uppspretta vonar, trausts og vangaveltna,“ segir í tilkynningu

Þetta er bækurnar sem tilnefndar eru til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár:

Danmörk

Per eftir Zenia Johnsen og Signe Parkins (myndhöf.). Myndlýst frásögn, Jensen o…

Den fantastiske bus eftir Jakob Martin Strid. Myndabók, Gyldendal, 2023.

Finnland

Laske salaa kymmeneen eftir Laura Lähteenmäki. Skáldsaga fyrir börn, WSOY, 2023…

Skelettet eftir Malin Klingenberg og Maria Sann (myndhöf.). Myndabók, Schildts …

Færeyjar

Toran gongur eftir Rakel Helmsdal. Myndabók, Bókadeild Føroya Lærafelags, 2023.

Grænland

Manguaraq eftir Christian Rex. Myndasaga, Ilinniusiorfik, 2023.

Ísland

Hrím eftir Hildi Knútsdóttur. Unglingabók, Forlagið, 2023.

Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur (myndhöf.)…

Noregur

Udyr eftir Ingvild Bjerkeland. Unglingaskáldsaga, Cappelen Damm, 2023

Oskar og eg eftir Maria Parr og Åshild Irgens (myndhöf.). Upplestrarbók fyrir b…

Samíska málsvæðið

Hamburgerprinseassa – Eallá dušše oktii eftir Saia Stueng. Unglingabók, Davvi G…

Svíþjóð

Någons bror eftir Viveka Sjögren. Myndabók, Vombat förlag, 2023.

Bror eftir Alex Khourie. Unglingaskáldsaga, Rabén & Sjögren, 2023.

Álandseyjar

Freja och huggormen eftir Fredrik Sonck og Jenny Lucander (myndhöf.). Myndabók,…

Það var dómnefnd skipuð fulltrúum frá löndunum sem tilnefndi verk til barna- og unglingabókmenntaverðlaunanna.

Dómnefnd barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

„Verðlaunahafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 verður kynntur hinn 22. október í sjónvarpsþætti sem sýndur verður í öllum norrænu löndunum. Handhafi verðlaunanna mun taka þátt í verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í 44. viku ársins. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós auk verðlaunafjár sem nemur 300 þúsund dönskum krónum.“

Um barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:

„Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2013 að ósk norrænu menningarmálaráðherranna, sem höfðu um árabil viljað efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum.

Verðlaunin eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk fyrir börn og unglinga sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Verkið getur samanstaðið af bæði texta og myndum og skal uppfylla strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.“

Nánari upplýsingar um barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.