Draumur Stígs rættist með stóðhestinum Steini Valur Páll Eiríksson skrifar 18. apríl 2024 08:00 Guðbrandur Stígur hefur beðið lengi eftir tækifærinu sem gafst um síðustu helgi. Hann er KR-ingur mikill rétt eins og hinn brúnskjótti Steinn frá Stíghúsi, og hefur löngum lagt áherslu á mikilvægi þess að strauja treyjuna á tyllidögum. Samsett/Úr einkasafni/Henk Petersen Stóðhesturinn Steinn frá Stíghúsi vakti verðskuldaða athygli um síðustu helgi er hann safnaði 500 þúsund krónum fyrir stuðningsfélagið Einstök börn. Hann vakti þó ef til vill meiri athygli fyrir KR-ljómann í kringum sýningu hans, en við það rættist ósk eiganda hestsins.
Árleg stóðhestaveisla var haldin í Ölfushöllinni fyrir smekkfullu húsi á laugardaginn var. Hrossið Steinn frá Stíghúsi var einn þeirra glæsilegu stóðhesta sem fram kom og var tollur undir hann boðinn upp til styrktar samtökunum Einstökum börnum. Steinn frá Stighúsi og Þorgeir Ólafsson, knapi.Mynd/Henk Petersen Knapi á Steini var Þorgeir Ólafsson en klæðnaður hans og lagið sem var spilað á meðan Steinn kom fram vakti athygli og kátínu viðstaddra. Þorgeir var íklæddur KR-treyju og stuðningslag félagsins hljómaði í hljóðkerfinu. Það var gert að beiðni eiganda Steins, Guðbrands Stígs Ágústssonar, sem lét þar með langþráðan draum rætast. „Þegar ég byrjaði í þessari hestamennsku fyrir einhverjum árum tók ég þá ákvörðun innra með mér að ef ég myndi einhvern tímann lenda í því að hestur frá mér færi sem uppboðstollur á svona sýningu þá myndi ég fá knapana til að vera hátíðarklædda, í vel straujaðri og fallegri KR-treyju,“ segir Guðbrandur Stígur. „Því eins og þjóð veit þá er KR flottasta íþróttafélag landsins. Það skemmdi ekki fyrir að hesturinn sem var þarna, Steinn frá Stíghúsi er brúnskjóttur, eða svartur og hvítur. Þá liggur nú beinast við að blasta fallegasta stuðningslagi allra tíma, KR-laginu með Bubba Morthens, undir. Það var það sem við gerðum,“ bætir hann við. Klippa: Stóðhesturinn Steinn í KR-stuði Tugir milljóna safnast fyrir góð málefni Tollur undir Stein seldist nafnlausum styrktaraðila á 500 þúsund krónur sem renna til samtakanna Einstök börn, stuðningsfélags barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Hin árlega stóðhestaveisla er gjarnan nýtt til fjáröflunar fyrir góð málefni og hrósar Guðbrandur skipuleggjendum í hástert. Hér er þeim Magnúsi og Rakel gefinn tollur undir Stein frá Stíghúsi og salurinn klappar fyrir framlagi þeirra undanfarin ár. Frá vinstri: Benjamín Sandur, Rakel, Magnús, Steinn frá Stíghúsi, Þorgeir og Guðbrandur Stígur.Mynd/Henk Petersen „Þau sem eru aðalsprautan í þessari stóðhestaveislu hafa verið Magnús Benediktsson og kona hans, Rakel. Síðan þau byrjuðu með þessa veislu hafa þau safnað fyrir líknarfélög, góðgerðafélög og einstaklinga, á milli 50 og 60 milljónum í gegnum þessar veislur,“ „Það er náttúrulega alveg einstakt verk hjá þeim að gera þetta og mikil vinna. Þau hafa staðið sig alveg svakalega vel að framfylgja þessu,“ segir Guðbrandur. Líst vel á sumarið og vill strákinn heim Karlalið KR hefur farið vel af stað í Bestu deild karla og unnið fyrstu tvo leiki sína, í fyrsta skipti frá árinu 2013. Fram er næsti andstæðingur á laugardaginn kemur en Guðbrandur er spenntur fyrir sumrinu. „Mér líst bara vel á það. Ég er búinn að fylgjast dálítið með vorleikjunum og mér finnst vera skemmtileg ára yfir Vesturbænum og KR-liðinu og þetta leggst vel í mig. En ég held að hópurinn sé smá brothættur, við erum ekki með stóran hóp en ef það verða ekki mikil meiðsli ættum við að geta gert gott mót. Ég er alveg viss um það,“ segir Guðbrandur. Gyrðir Hrafn er í svarthvítu en faðir hans vonast eftir að sjá hann í röndóttu á ný.Vísir/Hulda Margrét Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sonur hans en sá leikur með FH, eftir að hafa verið á mála hjá KR um tíma. Blessunarlega spila FH-ingar einnig í svörtu og hvítu. „Það góða við það er að það er svarthvítur búningur, en ég verð að hryggja FH-ingana, vini mína, með því að hann er ekki jafn flottur og sá röndótti. Gyrðir hefur staðið sig vel en vonandi kannski fær hann einhvern tíma að klæðast aftur þeim röndótta,“ segir Guðbrandur Stígur að endingu.
Hestaíþróttir Hestar KR Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Hildur til Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Bein útsending: Ísland - Tyrkland | Fara stelpurnar okkar lengra í A-deild? Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Berglind næststigahæst á EM Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Dagskráin í dag: Snókerinn á sviðið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands