Einar Árni hættur hjá Hetti Gunnar Gunnarsson skrifar 22. apríl 2024 22:36 Einar Árni er hættur hjá Hetti. Austurfrétt/Gunnar Einar Árni Jóhannsson, annar þjálfara liðs Hattar í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, hefur ákveðið að láta af störfum.
Þetta var tilkynnt eftir leik Hattar og Vals á Egilsstöðum í kvöld. Valur vann leikinn í framlengingu sem Höttur knúði fram með frábærum fjórða leikhluta. Úrslitin þýða að Valur er kominn í undanúrslitin en tímabilinu er lokið hjá Hetti. Einar Árni kom til félagsins sumarið 2021 til starfa við hlið Viðars Arnar Hafsteinssonar. Liðið fór upp úr fyrstu deildinni vorið 2022 og hélt sér síðan í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn 2023 auk þess að komast í undanúrslit bikarkeppninnar. Í vor komst liðið í fyrsta sinn í úrslitakeppnina. Einar hefur að auki verið yfirþjálfari yngri flokka. „Það er ofboðslegur missir af Einari Árna. Það var frábært að fá hann inn, hann kom með mikla reynslu og gæði inn í félagi, bæði fyrir yngri flokka og meistaraflokk. Á hans tíma hefur fjölgað í yngri flokkum og meistaraflokkurinn náð sínum besta árangri síðan við hófum þessa vegferð fyrir 13-14 árum. Við þökkum fyrir hans framlag og vonandi náum við að fylla hans skarð,“ sagði Viðar Örn eftir leikinn í kvöld. Hann sagði engar frekar breytingar liggja fyrir á leikmannahópi Hattar að svo stöddu. „Það eru alltaf einhverjir sem hugsa sér til hreyfings upp á skóla eða slíkt meðan aðrir eru farnir að eldast. Ég vona að við náum að halda í sem flesta því ég tel að við getum haldið áfram að taka skref fram á við með þennan kjarna.“
Körfubolti Subway-deild karla Höttur Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira