Innlent

Hefur ekki á­huga á slúðurfréttum af öðrum fram­bjóð­endum

Árni Sæberg og Hólmfríður Gísladóttir skrifa
Katrín Jakobsdóttir mætti í Pallborðið ásamt þeim Baldri Þórhallssyni og Höllu Hrund Logadóttur.
Katrín Jakobsdóttir mætti í Pallborðið ásamt þeim Baldri Þórhallssyni og Höllu Hrund Logadóttur. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir segir að hún hafi persónulega ekki áhuga slúðurfréttum af einkalífi forsetaframbjóðenda. Hún leggur þó áherslu á að fjölmiðlar séu frjálsir og þjóðin eigi rétt á að vita ýmislegt um frambjóðendur.

Mikið hefur verið rætt og skrifað um framgang fjölmiðla gagnvart forsetaframbjóðendum í aðdraganda kosninga. Þar hefur spurning Stefáns Einars Stefánssonar á Morgunblaðinu um ljósmynd af Baldri Þórhallssyni á skemmtistað í París verið mest á milli tannanna á fólki.

„Mér finnst að þjóðin eigi töluvert mikinn rétt á að vita sem mest um þau sem gefa kost á sér í þetta embætti því þetta er auðvitað eitt mikilvægasta, og bara mikilvægasta, embætti landsins,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í Pallborðinu á Vísi í gær, spurð út í það hversu nærri frambjóðendum fjölmiðlamenn mega ganga.

Hún segir reginmun vera á umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda forsetakosninga og annarra kosninga, enda séu nú einstaklingar í framboði. 

Fjölmiðlar séu frjálsir

Kemur það okkur við ef hvort þið hafið haldið fram hjá eða verið sektuð fyrir ölvunarakstur?

„Fjölmiðlar auðvitað eru frjálsir, ég ætla ekki að hafa skoðun á því hvað fjölmiðlar taka upp. Persónulega hef ég ekki mikinn áhuga á slíkum fréttum af þeim sem gefa kost á sér í þetta embætti.“

Gefur lítið fyrir að óheppilegt sé að forseti hafi verið í stjórnmálum

Katrín segir að hún hafi heyrt talað um að óheppilegt sé að forseti hafi verið í stjórnmálum, líkt og hún var í tæpa tvo áratugi.

„En á sama tíma finnst öllum mikils um vert að forseti beiti málskotsrétti og sá forseti sem beitti honum gerði það mögulega einmitt vegna þess að hann hafði þessa þekkingu og reynslu af stjórnmálum. Það er það sem ég vil halda til haga í þessu, það er sú reynsla sem ég kem með á borðinu. Mér finnst hins vegar eðlilegt að fjölmiðlar og aðrir spyrji mann um ýmislegt annað, líka, bæði manns persónulega hagi og önnur þau mál sem maður leggur áherslu á sem tengjast hinu opinbera lífi sem maður kann að hafa lifað áður.“


Tengdar fréttir

Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna

Prófessor í stjórnmálafræði segir betra fyrir forsetaframbjóðendur að hafa allt uppi á borðum. Í litlu samfélagi séu margar furðusögur á sveimi og mikilvægt fyrir viðkomandi að fá tækifæri til að leiðrétta þær. Þá segir hún forseta í raun gefa upp frelsi sitt þegar hann er kjörinn, þar sem hann sé á sólarhringsvakt alla daga ársins. 

Spurningar til Baldurs minni á árið 1980

Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×