Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. maí 2024 09:03 Meðal umsagnaraðila eru fagfélög listamanna, ýmsir listahópar og stofnanir á borð við Þjóðleikhúsið og Sinfóníu Íslands. Myndin er af uppsetningu ÍÓ á Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson. Íslenska óperan Það virðist samhljóma álit söngvara, tónlistarfólks og annarra listamanna að stofnun Þjóðaróperu sé mikið framfaraskref í óperustarfsemi hérlendis.
Frumvarp um Þjóðaróperu liggur nú hjá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis og alls hafa 34 einstaklingar, félög og stofnanir skilað inn umsóknum um málið. Umsagnirnar eru allar jákvæðar, utan einnar, en stjórn Íslensku óperunnar sker sig úr fjöldanum. Stjórnin hefur gagnrýnt frumvarpið harðlega og kallað eftir áframhaldandi starfsemi ÍÓ. „Íslenska þjóðin er með afbrigðum söngelsk. Fjölmargir hafa sungið eða syngja í kórum, og stunda söngnám. Nýlega var meira að segja stofnaður kór þingmanna. Alltaf er uppselt á óperusýningar, bæði á stóru uppfærslurnar sem og minni sýningar sjálfstæðra grasrótarhópa. Frá árinu 2000 hafa komið fram yfir 80 ný íslensk óperuverk. Það er því ekki hægt að segja annað en að hér búi miklir hæfileikar og þekking, en ekki síst eftirspurn eftir meiri óperu,“ segir í umsögn Andra Björns Róbertssonar óperusöngvara, sem situr í stjórn Klassís, félags klassískra söngvara á Íslandi. „Þjóðarópera mun skapa umgjörð um óperulistformið og starfsvettvang sem lengi hefur verið keppikefli klassískt menntaðra söngvara á Íslandi. Við fögnum sérstaklega þeirri áherslu í frumvarpinu sem lögð er á nýsköpun í listforminu, fræðslustarf, auk sterkrar tengingar við landsbyggðina og samfélagið allt,“ segir í umsögn Klassís en margir umsagnaraðilar fagna þeirri áherslu sem lögð er á grasrótarstarf og aðkomu landsbyggðarinnar að nýrri Þjóðaróperu. „Það er löngu tímabært að óperutónlist hér á landi sitji að sömu gæðum listrænnar stjórnunar og reksturs frá hinu opinbera og Þjóðleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn. Tengingin við landsbyggðina er mikilvægt verkefni, þar sem tónlistarmenntun og tónlistarlíf eru blómleg í öllum landsflórðungum og áðurtaldar liststofnanir eru ekki stofnanir höfuðborgarinnar þó þær séu staðsettar þar, heldur Íslands, landsins alls og þeirra sem landið byggja,“ segir í umsögn Hlínar Pétursdóttur Behrens, stofnanda og formanns listhópsins Austuróps. Setja spurningamerki við stöðu þjóðleikhússtjóra Stjórn Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum fagnar frumvarpinu en gerir nokkrar athugasemdir við aðkomu þjóðleikhússtjóra. Stjórnin vill ekki að leikhússtjóri eigi aðkomu að ráðningu óperustjóra, eins og frumvarpið kveður á um. Þá sé óeðlilegt að óperustjóri sé undirmaður þjóðleikhússtjóra í skipuriti. Stjórn Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum veikur einnig athygli á því að þegar Þjóðarópera verði til undir hatti Þjóðleikhússins þá sé eðlilegt að starf þjóðleikhússtjóra verði auglýst að nýju. Undir þetta tekur Páll Baldvin Baldvinsson í umsögn sinni en hann kom að endurskoðun sviðslistalaganna í menntamálaráðuneytinu árið 2020. Páll bendir á að skipunarbréf núverandi þjóðleikhússtjóra renni út í lok þessa árs. „Íslenska Óperan á að baki merka sögu. Ég er einn af stofnfélögum hennar og söng í mörgum sýningum hennar. Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í starfsemi hennar. Hún hefur nú gengið sitt skeið á enda, sem eignalaus sjálfseignarstofnun. Þess vegna er knýjandi nauðsyn að búa svo um hnútana að óperulistinni verði búin varanleg starfsaðastaða. Með stofnun Þjóðaróperu verður það gert á hagkvæman og skynsamlegan hátt,“ segir Kristinn Sigmundsson óperusöngvari. „Í Ijósi þess að veruleg breyting verður á starfi þjóðleikhússtjóra með því sem í vændum er tel ég að kanna þurfi hvort eðli breyttrar og nýrrar ábyrgðar starfsins (aukin umsvif, viðbótarfjármagn til rekstrar allt að 600 milljónum er fram í sækir) kalli á að hafið verði yfir allan vafa hvort ráðherra sé heimilt að nýta endurskipunarrétt sinn til ráðningar Magnúsar [Geirs Þórðarsonar] næstu fimm ár frá 1. janúar 2025 eða hvort auglýsa verði starfið að nýju að breyttu breytanda,“ segir Páll Baldvin. Í þessu felist ekki gagnrýni á Magnús, ítrekar Páll. „Ég dreg ekki dul á að innan sviðslistageirans hefur þessi staða verið til umræðu og því sé nefndinni brýnt að láta kanna hjá sérfræðingum sínum það álitamál sem hér um ræðir og fylgja niðurstöðum þeirrar könnunar eftir í umsögn sinni þingi og ráðherra til leiðbeiningar.“ Stjórn Félags íslenskra söngkennara fagnar sömuleiðis frumvarpinu og segir það munu gjörbreyta atvinnumöguleikum söngvara á Íslandi og þar með framtíðarsýn margra nemenda. „Fyrirhugað er að Þjóðarópera muni ráða yfir 12 fullum stöðugildum fyrir einsöngvara og 16 hálfum stöðugildum fyrir kór. Þannig geta nemendur okkar séð fyrir sér að gera sönglist að sínu aðalstarfi á Íslandi, en fram að þessu hafa klassískir söngvarar nær eingöngu átt þann kost að helga sig sönglistinni á erlendri grundu.“
Menning Þjóðaróperan Tónlist Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira