Tíska og hönnun

Tískan á körfuboltaleiknum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Körfuboltaaðdáendur dressuðu sig upp fyrir N1 höllina í gær.
Körfuboltaaðdáendur dressuðu sig upp fyrir N1 höllina í gær. SAMSETT

Það var gríðarleg stemning og mikil spenna á Hlíðarenda í gær þegar að Valur varð Íslandsmeistari í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík. N1 höllin var troðfull af stuðningsmönnum sem margir hverjir nýttu tækifærið til þess að klæða sig upp. 

Lífið á Vísi tók saman nokkur skemmtileg lúkk frá fólkinu á hliðarlínunni. 

Tískuvinir! Rapparinn og leikstjórinn Jóhann Kristófer Stefánsson, Joey Christ, skartaði einstakri Prada skyrtu fyrir tilefnið en Jóhann hefur áður ratað inn á lista yfir best klæddu Íslendingana. Högni Egilsson tónlistarmaður klæðist svo Issey Miyake.Anton Brink
Guðni Bergsson (til vinstri) valdi ljósgráa peysu yfir hvítan bol og bláar buxur. Þorgrímur Þráinsson virðist klæðast denim on denim ef gallaskyrtan í forgrunni er hans. Ragnhildur Eiríksdóttir, til hægri, er klædd í appelsínugulan og sumarlegan galla með brúna Fendi tösku við.Vísir/Anton Brink
Bræðurnir og körfuboltamennirnir Yngvi Guðmundsson, Jón Axel í ljósri stutterma suamrskyrtu og Bragi Þór Guðmundsson í Dior peysu með demant í eyranu.Vísir/Anton Brink
Gylfi Þór Sigurðsson valdi ljósa hettupeysu við gallabuxur fyrir leikinn.Vísir/Anton Brink
Blátóna fjölskylda! Benedikt Bjarnason í dökkbláu fitti við hvítan og bláan bol, Þóra Margrét Baldvinsdóttir í gallabuxum við ljósan og svartan jakka með mynstraðan klút við og Bjarni Benediktsson í dökkbláu við ljósari bláa skyrtu.Vísir/Anton Brink
Breki Logason og Andri Ólafsson báðir í ljósbláum skyrtum. Vísir/Anton Brink
Jóhann Alfreð í Les Deux stuttermabol með dökkbláa derhúfu.Vísir/Anton Brink
Guðmundur Björnsson til vinstri í dökkbláum jakka við gallabuxur og hvíta skyrtum. Með hækkandi sól fara stuttbuxurnar svo að njóta sín í hinum ýmsu litum.Vísir/Anton Brink
Ráðherrarnir Willum Þór Þórsson og Ásmundur Daði Einarsson í bláu! Vísir/Anton Brink
Adam Pálsson í ljósblárri skyrtu og vel skartaður með demantshálsmen, armband og hringa.Vísir/Anton Brink
Stefán Árni Pálsson og Garðar Örn Arnarson stílhreinir og smart.Vísir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.