Menning

„Svo­lítið eins og að standa nakinn inni í vita“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listamaðurinn Villi Jóns, til vinstri, var að opna sýningu í Akranesvita. Með honum er Barði Jóhannsson.
Listamaðurinn Villi Jóns, til vinstri, var að opna sýningu í Akranesvita. Með honum er Barði Jóhannsson. Aðsend

„Ég er í sjöunda himni með viðtökurnar á þessu öllu,“ segir listamaðurinn Villi Jóns. Villi sérhæfir sig í myndlist og sjónlist en hann stendur fyrir sýningunni Tvídrangar sem staðsett er á annarri og þriðju hæð Akranesvitans. Það var mikil stemning í opnunarhófinu þar sem Elín Ey, Íris Tanja og Eyþór Ingi stigu meðal annars á stokk.

„Þar sem blýants- og kolateikningar öðlast stærra rými í gegnum teikniforrit og stafræna miðla. Hvert einasta verk klýfur tvo dranga, annan áþreifanlegan og handunnin og hinn sem er stafrænn og unninn í listaskýi mest með rafblýant. 

Viðfangsefnin eru öll tvískinnungur með neikvæðum hliðum en á sama tíma sjúklega jákvæðum,“ segir í fréttatilkynningu.

Prómó myndin fyrir sýninguna.Villi Jóns

Villi segir að opnunin hafi heppnast mjög vel.

„Ég er í sjöunda himni með viðtökurnar á þessu öllu og þetta voru öll verk sem voru hjartanu næst, þannig að þetta var svolítið eins og að standa nakinn inni í vita,“ segir Villi hlæjandi og bætir við: „Elín Ey og Íris Tanja opnuðu sýninguna með ljúfri tónlist sem heillaði viðstadda upp úr skónum. Eyþór Ingi tók við og spilaði lögin With You og Dalinn en ég gerði einmitt kóverið og myndbandið við With you.“

Villi var einmitt í tónlist mest af, meðal annars í jaðarhljómsveitunum Worm is Green og Musik Zoo og hefur sömuleiðis samið rafræna tónlist fyrir kvikmyndir og auglýsingar undir alls konar nöfnum. Nú hefur myndlistin tekið við.

„Eyþór Ingi frumsýndi síðan myndband við lagið Leiðin heim en myndbandið er í raun Villi að teikna myndina við lagið. Um hundrað manns mættu á opnun í vitann sem var stútfullur af Þristum og stjörnurúllumm, dálæti listamannsins sem er með súkkulaðifíkn á lokastigi. 

Þetta er sölusýning með eftirprentum líka og sérstökum eintökum af Bananas. Villi kemur til með að heimsækja vitann og teikna í honum hér og þar fram að sýningarlokum en sýningin stendur fram í miðjan júní“ segir sömuleiðis í fréttatilkynningu. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: 

Villi að hengja upp.Aðsend
Sýningin kemur mjög skemmtilega út í vitanum.Aðsend
Eyþór Ingi var í góðum gír.Aðsend
Listræna parið Íris Tanja og Elín Ey tóku lagið.Aðsend
Það var margt um manninn á opnuninni.Aðsend
Gestir fengu að sjá videoverk og tónlistarmyndbönd.Aðsend
Listunnendur á öllum aldri mættu.Aðsend
Það var mikil listræn gleði í loftinu.Aðsend
Rætt um listina.Aðsend
Sýningarrýmið.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.