Annasamir dagar framundan hjá Höllu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. júní 2024 18:52 Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands rifjaði upp vikurnar fram að innsetningu sinni í Reykjavík síðdegis í dag. Vísir/Vilhelm Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands segir annasama daga bíða Höllu Tómasdóttur nýkjörins arftaka hans þrátt fyrir að hún taki ekki formlega við embættinu fyrr en í ágústbyrjun. Að ýmsu þurfi að huga þangað til að hinn örlagaríki fyrsti ágúst renni upp og innsetning sjöunda forseta lýðveldisins fer fram með pompi og prakt.
Í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag rifjar Guðni upp vikurnar og mánuðina sem komu í kjölfar þess að hann bar sigur úr býtum í kosningum til forseta Íslands árið 2016 og þegar hann tók formlega við embættinu í ágúst sama árs. „Maður fór yfir það í huganum hvernig maður vildi sinna embættinu og vissulega þarf maður að setja sig inn í ákveðin atriði sem lúta að til dæmis innsetningunni. Hvernig á að haga henni og framundan eru líka alls kyns viðburðir. Halla þarf að íhuga núna hvert hún vill fara fyrstu vikurnar og mánuðina. Og svo þarf hún að koma sér fyrir á nýjum stað,“ segir Guðni og bætir við að hann og Eliza hafi verið í samskiptum við næstu ábúendur á Bessastöðum. Lærir eitthvað nýtt á hverjum degi Guðni segir forseta ekki fá neina formlega kennslu í embættisstörfum en að starfsfólk skrifstofu forsetans sé alltaf til halds og trausts. Maður þurfi bara að spyrja þau og þá fær maður svör. „Svo er reynslan góður aðstoðarmaður ef svo má segja. Frá fyrsta degi er maður alltaf að læra eitthvað nýtt og þannig á það að vera,“ segir Guðni. Klippa: Hefði verið ágætt að hafa á ferilskránni að hafa synjað lögum staðfestingar til að geta sagt það en svoleiðis má forseti aldrei haga sér Umræðan spannaði vítt svið og var Guðni spurður út í hvort honum fyndist of mikið hafa verið gert úr valdsviði forsetaembættisins eins og gárungum varð tíðrætt um í aðdraganda kosninganna. „Kjósendur sýndu að þau forsetaefni sem lögðu mikla áherslu á það að hér væri allt í óefni og að forsetinn þyrfti að vera nánast einræðisherra eða í það minnsta einhvers konar eftirlitsmaður með vonlausu Alþingi fengu ekki brautargengi og það þýðir ekki að kenna öðrum en sjálfum sér um það ef svo fer,“ segir Guðni þá. Guðni kemur forsetaframbjóðendunum til varnar þegar hann var spurður út í misgott gengi þeirra í hraðaspurningum sem lagðar voru fyrir þá í kappræðum Stöðvar 2 í síðustu viku. Frambjóðendurnir svöruðu misvel. Guðni segist ekki hafa getað náð öllum spurningunum réttum. „Ég hefði ekki munað að aðalsöguhetjan í Englum alheimsins heiti Páll og ég hefði ekki náð Helgu hinni fögru. Ég er ekki það vel lesinn í Gunnlaugs sögu Ormstungu en ég held ég hefði náð öllu hinu. Svona krossapróf eru náttúrlega ekki á dýptina en hver sem gegnir þessu embætti þarf auðvitað að hafa áhuga á íslenskri menningu og sögu og tungu og það er engin hætta á ferðum þar,“ segir Guðni. Hverfur aftur í Háskólann Að lokum berst talið að því sem tekur við hjá Guðna sem lætur af embætti aðfaranótt fyrsta ágúst næstkomandi. Guðni stefnir aftur í Háskólann þar sem hann vill halda áfram að sinna sagnfræðinni sem hann er vafalaust ekki haft nægan tíma til að sinna á síðustu átta árum. „Ég hverf í þann heim sem ég var í. Það er sagnfræðin og ég er með í smíðum rit um sögu landhelgismálsins og þorskastríðanna sem mér finnst mjög gaman að sinna. Það eru alls konar tækifæri sem vakna við það að vera fyrrverandi forseti,“ segir Guðni. „Auðvitað er það svo að maður er á berangri á Bessastöðum og ber einn ábyrgð á öllu sem embættið snýst um og það getur verið yfirþyrmandi. En fyrst og fremst heiður og þakklæti og gleði yfir því að vita að embættið er á góðum stað. Mikið er rætt núorðið um minnkandi traust til ýmissa stofnana í samfélaginu og mér þykir vænt um það að traust til embættis forseta Íslands hefur verið stöðugt og mikið. Ég tel það mikilvægt að Íslendingar beri þetta traust til embættisins. Þannig held ég að okkur muni best farnast,“ segir Guðni að lokum.
Forseti Íslands Forsetakosningar 2024 Halla Tómasdóttir Guðni Th. Jóhannesson Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Sjá meira