Könnunin, sem var birt í kvöld á RÚV, var framkvæmd 30. apríl til 2. júní 2024. Úrtakið var 12.731 manns og þátttökuhlutfall var 50,2 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn mælist þar næststærstur með 18 prósent og Miðflokkurinn, sá þriðji stærsti, er með 13 prósent. Framsóknarflokkurinn og Píratar eru hvor um sig með 9 prósent, Viðreisn fær 8 prósent og Flokkur Fólksins 6 prósent. Minnsta fylgið mælist hjá Sósíalistaflokknum með 4 prósent og Vinstri Grænum, sem mælast með einungis 3 prósent.
Samfylkingin fengi tuttugu og einn þingmann samkvæmt þessum tölum, Sjálfstæðisflokkurinn tólf, og Miðflokkurinn níu. Framsóknarflokkurinn og Píratar fengju sex þingmenn hvor, og Viðreisn fengi fimm. Sósíalistar og Vinstri Græn næðu ekki manni á þing.
Einnig var spurt um stuðning við ríkisstjórnina, sem mældist 29 prósent.