ÍTF í herferð gegn ólöglegri tölfræðisöfnun: „Gríðarlegir fjármunir í húfi“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. júní 2024 14:42 ÍTF, Íslenskur toppfótbolti, ætlar sér í herferð gegn ólöglegri tölfræðisöfnun í efstu deildum karla og kvenna hér á landi. Vísir/Daníel Hagsmunasamtökin ÍTF, Íslenskur toppfótbolti, eru farin í herferð gegn ólöglegri tölfræðisöfnun á leikjum í íslenskum fótbolta. ÍTF sendi frá sér fréttatilkynningu fyrr í dag þar sem samtökin vekja athygli á því að aðilar sem hafa ekki rétt á því að safna gögnum úr leikjum efstu deilda íslensk fótbolta stundi það á ólöglegan máta. Samtökin segja málið vera orðið alvarlegt og að hægt sé að líkja umræðunni við þá umræðu sem hefur átt sér stað um ólögleg netsjónvörp. Í tilkynningunni kemur einnig fram að einungis aðilar sem séu merktir fyrirtækinu Genius Sports hafi heimild til að safna upplýsingum úr leikjum og senda þær upplýsingar áfram til kaupenda víðs vegar í Evrópu og um heiminn, enda séu íslensk knattspyrnufélög með samning við fyrirtækið. Tilkynningu ÍTF má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:
ÍTF sendi frá sér fréttatilkynningu fyrr í dag þar sem samtökin vekja athygli á því að aðilar sem hafa ekki rétt á því að safna gögnum úr leikjum efstu deilda íslensk fótbolta stundi það á ólöglegan máta. Samtökin segja málið vera orðið alvarlegt og að hægt sé að líkja umræðunni við þá umræðu sem hefur átt sér stað um ólögleg netsjónvörp. Í tilkynningunni kemur einnig fram að einungis aðilar sem séu merktir fyrirtækinu Genius Sports hafi heimild til að safna upplýsingum úr leikjum og senda þær upplýsingar áfram til kaupenda víðs vegar í Evrópu og um heiminn, enda séu íslensk knattspyrnufélög með samning við fyrirtækið. Tilkynningu ÍTF má lesa í heild sinni hér fyrir neðan: Ólögleg tölfræðisöfnun á leikjum í íslenskum fótbolta Íslensk knattspyrnufélög eru með samning við fyrirtækið Genius Sports um tölfræðisöfnun og upplýsingagjöf af knattspyrnuleikjum í efstu deildum karla og kvenna. Fyrirtækið sendir fulltrúa á alla leiki í efstu deildum, þeir aðilar eru merktir Genius Sports og hafa fulla heimild til þess að safna upplýsingum úr leikjunum og senda þær upplýsingar áfram til kaupenda víðs vegar í Evrópu og heiminn. Aðrir aðilar en þeir sem eru á vegum Genius Sport hafa ekki heimild til þess að safna slíkum upplýsingum og senda áfram. Þeir eru með athæfi sínu að brjóta gegn vörðum réttindum íslenskra knattspyrnufélaga, réttindum sem félögin hafa lagt gríðarlega vinnu í að verja og fá greitt fyrir til eflingar á íslenskri knattspyrnu. Fyrirtækin sem eru að stela þessum réttindum hafa aðila hér innanlands sem stunda þessa iðju, s.s. Sportradar og Runningball og það eru íslenskir fulltrúar þessara fyrirtækja sem sjá hag sinn í því að stela réttindum félaganna. Það er gríðarlega mikilvægt að allir sem að koma, framkvæmdaaðilar leikja, þ.e. félögin sjálf, stuðningsmenn og starfsmenn leikjanna taki á þessari iðju og vísi þessum aðilum út af leikvöllunum séu þeir gripnir við það að safna þessum upplýsingum saman og senda frá sér til annarra aðila. Oftar en ekki eru þessir ólöglegu aðilar með auka síma eða litla handtölvu sem þeir setja upplýsingar í og senda svo áfram. ÍTF og íslensk knattspyrnufélög hvetja til þess að spornað verði við þessari iðju, áhorfendur tilkynni starfsmönnum leiksins verði þeir varir við slíka starfsemi og að starfsmenn leikjanna vísi viðkomandi af leikjunum. Það eru gríðarlegir fjármunir í húfi og mikilvægt að ekki komi til þess að örfáir aðilar hér innanlands komist upp með það í ósvífni sinni að hagnast á því að stela vörðum réttindum í íslenskum fótbolta.
Ólögleg tölfræðisöfnun á leikjum í íslenskum fótbolta Íslensk knattspyrnufélög eru með samning við fyrirtækið Genius Sports um tölfræðisöfnun og upplýsingagjöf af knattspyrnuleikjum í efstu deildum karla og kvenna. Fyrirtækið sendir fulltrúa á alla leiki í efstu deildum, þeir aðilar eru merktir Genius Sports og hafa fulla heimild til þess að safna upplýsingum úr leikjunum og senda þær upplýsingar áfram til kaupenda víðs vegar í Evrópu og heiminn. Aðrir aðilar en þeir sem eru á vegum Genius Sport hafa ekki heimild til þess að safna slíkum upplýsingum og senda áfram. Þeir eru með athæfi sínu að brjóta gegn vörðum réttindum íslenskra knattspyrnufélaga, réttindum sem félögin hafa lagt gríðarlega vinnu í að verja og fá greitt fyrir til eflingar á íslenskri knattspyrnu. Fyrirtækin sem eru að stela þessum réttindum hafa aðila hér innanlands sem stunda þessa iðju, s.s. Sportradar og Runningball og það eru íslenskir fulltrúar þessara fyrirtækja sem sjá hag sinn í því að stela réttindum félaganna. Það er gríðarlega mikilvægt að allir sem að koma, framkvæmdaaðilar leikja, þ.e. félögin sjálf, stuðningsmenn og starfsmenn leikjanna taki á þessari iðju og vísi þessum aðilum út af leikvöllunum séu þeir gripnir við það að safna þessum upplýsingum saman og senda frá sér til annarra aðila. Oftar en ekki eru þessir ólöglegu aðilar með auka síma eða litla handtölvu sem þeir setja upplýsingar í og senda svo áfram. ÍTF og íslensk knattspyrnufélög hvetja til þess að spornað verði við þessari iðju, áhorfendur tilkynni starfsmönnum leiksins verði þeir varir við slíka starfsemi og að starfsmenn leikjanna vísi viðkomandi af leikjunum. Það eru gríðarlegir fjármunir í húfi og mikilvægt að ekki komi til þess að örfáir aðilar hér innanlands komist upp með það í ósvífni sinni að hagnast á því að stela vörðum réttindum í íslenskum fótbolta.
Fótbolti Besta deild karla Besta deild kvenna Mest lesið Moldrík og virðist ætla að umturna kvennafótbolta Fótbolti Umtalað samband við eldri konu talið hafa spillt fyrir Körfubolti Ronaldo staðfestir að Evrópumótið í ár verði hans síðasta Fótbolti „Takk fyrir að berjast alltaf fyrir okkur stelpunum“ Íslenski boltinn Paul Pogba ekki hættur: „Ég mun berjast, fyrir sjálfan mig, gegn þessu óréttlæti“ Fótbolti „Líklega besti leikur lífs míns“ Fótbolti „Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“ Handbolti Fyrstur í sögunni til að verja þrjár vítaspyrnur í sama EM-leiknum Fótbolti Bandaríkin úr leik á Copa América og á leið í „djúpa naflaskoðun“ Fótbolti Gerir nýjan 44 milljarða risasamning við Boston Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Rúmenía-Holland | Hollendingar hafa ekki heillað hingað til Telma ekki efst þrátt fyrir að fá varla á sig mark Gerðu misheppnaða tilraun til að vekja Austurríkismenn með flugeldum Undrabarnið Gray til Tottenham Caldentey fer frá Evrópumeisturum Barcelona til Arsenal Moldrík og virðist ætla að umturna kvennafótbolta Fyrstur í sögunni til að verja þrjár vítaspyrnur í sama EM-leiknum Paul Pogba ekki hættur: „Ég mun berjast, fyrir sjálfan mig, gegn þessu óréttlæti“ Ronaldo staðfestir að Evrópumótið í ár verði hans síðasta Bandaríkin úr leik á Copa América og á leið í „djúpa naflaskoðun“ Feluleikurinn skilaði sigurmarki á síðustu stundu „Takk fyrir að berjast alltaf fyrir okkur stelpunum“ „Líklega besti leikur lífs míns“ Hinn fullkomni leikur hjá Nico Williams Man Utd horfir enn á ný til fyrrum lærisveins Ten Hag Diogo Costa varði þrjú víti í vító og Portúgalar mæta Frökkum De Bruyne: Of snemmt til að svara því Glódís Perla og hinar stelpurnar mældar í bak og fyrir Sjáðu sjálfsmarkið sem kom Frökkum í átta liða úrslit Aftur vinna Frakkar á sjálfsmarki og nú skilar það þeim í átta liða úrslit Ólíklegt að Bellingham fái leikbann Ísböð á nóttunni og alltaf tilbúinn að gefa góð ráð Chelsea fær framherja frá Barcelona og Earps til PSG Hlynur Freyr á leið til Svíþjóðar Borga yfir þrjátíu milljarða fyrir þrjú ár framan á búningum Rauðu djöflanna Fagnaði markinu með því að þykjast kasta vatnsbrúsa Skilur við Jamaíka í góðu og telur liðið á betri stað nú en þegar hann tók við Keane um Mainoo: „Er að gera hluti sem tók mig tíu ár að læra“ Bellingham í hættu á að vera sektaður fyrir klámfengin fagnaðarlæti Pogba og Matuidi verða heiðursgestir Frakka gegn Belgíu Sjá meira