Lífið

Kvik­­mynda­­stjarna slær í gegn á Lands­­móti hesta­manna

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Ída Mekkín og Marín frá Lækjarbrekku eru í fjórða sæti eftir keppni í milliriðli í unglingaflokki.
Ída Mekkín og Marín frá Lækjarbrekku eru í fjórða sæti eftir keppni í milliriðli í unglingaflokki. Eiðfaxi/Kolla Gr

Hornfirðingurinn Ída Mekkín Hlynsdóttir fer nú mikinn á Landsmóti hestamanna. Hún er í fjórða sæti í unglingaflokki eftir keppni í milliriðlinum, og hefur tryggt sér sæti í úrslitum. Ída Mekkín var ellefu ára þegar hún var í burðarhlutverki í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, og lék einnig í myndinni Volaða land, en hún er dóttir leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar.

Ída Mekkín keppir í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir í Reykjavík. Hún keppir á hestinum Marín frá Lækjarbrekku 2 fyrir hestamannafélagið Hornfirðingur.

Leikari og hestakona

Ída Mekkín skaust ung upp á stjörnuhimininn þegar hún fór með stórleik á móti Ingvari E. Sigurðssyni í kvikmyndinni Hvítur hvítur dagur, en bæði voru þau í burðarhlutverkum. Myndin hverfist um þrúgandi harm lögreglustjórans Ingimundar sem missir eiginkonu sína í bílslysi og samband hans við dótturdótturina, Sölku, sem syrgir ömmu sína meðan hún er helsta haldreipi afa síns í tættri tilverunni.

Ída sagði þá í viðtali við Vísi að hana langi til að vera hestakona, en ætli að leika inn á milli „ef það kemur eitthvað spennandi.“ Kvikmyndagerðin hafi stundum reynt á þolinmæðina. „Eftir á er ég alveg til í að leika meira en þetta var stundum leiðinlegt á meðan. En þegar maður hugsar til baka þá var þetta alveg skemmtilegt, skilurðu,“ sagði Ída.

Síðasta mót hestsins fyrir folaldseignir

Óhætt er að segja að hestamennskan gangi vel hjá Ídu. Eftir milliriðilinn eru hún og hestur hennar Marín með 8,86 stig. Í viðtali við Eiðfaxa segist hún vera ánægð með árangurinn, og að markmiðið hafi verið að komast í 8,4 stig.

„Þetta er núna þriðja árið mitt með Marín, fyrst átti ég bara að keppa á henni á Landsmótinu á Hellu, svo átti hún að fara í folaldseignir. Nema svo ákváðum við að taka hana á fjórðungsmót, sem var í fyrra, og svo ákváðum við að taka hana á Landsmót hingað líka,“ segir Ída. Landsmótið sé hennar síðasta áður en hún fari svo í folaldseignir.

Sjá annað viðtal Eiðfaxa við Ídu.

Ída sigurreif við óþekkt tilefni.Eiðfaxi
Ída á Cannes kvikmyndahátíðinni ásamt fríðu föruneyti árið 2022, þegar Volaða land var þar heimsfrumsýnd. Frá vinstri: Ída Mekkín Hlynsdóttir, Ingar Eggert Sigurðsson, Elliott Crosset Hove, Hlynur Pálmason, Victoria Carmen Sonne og Hilmar Guðjónsson.Getty
Ída í myndinni Hvítur hvítur dagurVísir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.