Randy er litríkasti gaurinn í hinni geggjuðu Pittsburgh Kristján Már Unnarsson skrifar 17. ágúst 2024 09:09 Sérvitringurinn og listamaðurinn Randy Gilson spjallar við gesti Randylands úr dyrum heimilis síns. KMU Randyland er án efa litríkasta kennileiti Pittsburgh, sumir segja í öllum Bandaríkjunum. Það er heimili listamannsins og sérvitringsins Randy Gilson og þykir svo sérstakt að það er orðið eitt vinsælasta aðdráttarafl borgarinnar.
Við vorum svo heppnir að sjálfur Randy var heima að spjalla við gesti þegar við Egill Aðalsteinsson kvikmyndatökumaður mættum á staðinn. Randy fagnaði Íslendingunum og sagðist raunar hafa fengið hóp frá Íslandi í heimsókn nokkrum dögum áður. Húsið var í niðurníðslu þegar hann keypti það fyrir lítið fé árið 1995. Hann hóf að mála það í skrautlegum litum en sankaði einnig að sér allskyns dóti og drasli sem hann sömuleiðis málaði skærum litum og kom fyrir á lóðinni, sem núna er orðinn sannkallaður ævintýraheimur. Aðgangur er ókeypis en tekið við frjálsum framlögum. Pittsburgh í Pennsylvaníu var heimsótt í þættinum Ísland í dag. Tilefnið er að núna býðst beint áætlunarflug þangað frá Íslandi en borgin varð í sumar einn af áfangastöðum Icelandair, sá tólfti hjá félaginu í Norður-Ameríku. Pittsburgh hefur raunar fóstrað fjölda líflegra einstaklinga og listamanna sem margir hafa hlotið heimsfrægð. Nefna má leikarann Gene Kelly, sem söng í rigningunni, Jeff Goldblum úr Jurassic Park, Michael Keaton, sem lék Batman, Charles Grodin, pabbann úr Beethoven, goðsögnina James Stewart, rithöfundinn Gertrude Stein og popplistamanninn Andy Warhol. Frá Andy Warhol-safninu í Pittsburgh. Campbells-súpudósirnar eru meðal þekktustu verka Andy Warhol.KMU Ferðalag okkar hófst á Keflavíkurflugvelli. Þeir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, opnuðu flugleiðina formlega með því að klippa á borða í Leifsstöð áður en farþegum var boðið að ganga um borð. Flugvallarslökkviliðið myndaði heiðursboga með vatnsbunum þegar ekið var frá flugstöðinni. Boeing 737 MAX-þotu Icelandair í þessu fyrsta flugi stýrðu tvær konur, þær Sigrún Bender flugstjóri og Kristín Edda Egilsdóttir aðstoðarflugmaður. Í flugstjórnarklefanum fræddu þær okkur um hvernig flug á nýjan áfangastað kallaði á meiri undirbúning flugferðar. Þá sögðust þær aldrei fá nóg af því magnaða útsýni sem birtist þegar flogið er yfir Grænland, með sínum fjörðum, fjallgörðum, skriðjöklum og hafís. Sigrún Bender var flugstjóri í fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh.Egill Aðalsteinsson Andstæðurnar gátu vart verið meiri þegar grænt og hlýlegt landslag Pennsylvaníu birtist farþegum í aðfluginu eftir nærri sex stunda flug, - í mótsögn við hið hvíta og kuldalega Grænland. Árið 2017 varð Wow Air fyrst íslenskra flugfélaga til að bjóða upp á beint flug til Pittsburgh. Fimm árum eftir að þeirri sögu lauk hefur Icelandair tekið upp þráðinn og býður upp á fjögur flug í viku fyrst um sinn. Aðeins eitt annað flugfélag, British Airways, er með beint flug milli Pittsburg og Evrópu. Fjölmiðlar staðarins sýndu komu Íslendinganna mikinn áhuga. Í hádegisverði með áhrifafólki úr viðskiptalífi Pittsburgh, með mögnuðu útsýni yfir borgina, fagnaði Christina Cassotis flugi Icelandair en hún er framkvæmdastjóri flugvalla sýslunnar. Christina sagði borgina þurfa fleiri flugtengingar út í heim, þar væru margir sem dýrkuðu Ísland og sagðist líka viss um að Íslendingar kynnu að meta Pittsburgh. Christina Cassotis, framkvæmdastjóri flugvalla Allegheny-sýslu, flytur ræðu í hádegisverði með áhrifafólki úr viðskiptalífi Pittsburgh vegna fyrsta flugs Icelandair til borgarinnar.Egill Aðalsteinsson Pittsburgh er næst stærsta borg Pennsylvaníu, á eftir Fíladelfíu, með um 300 þúsund íbúa. Með nágrannabæjum teljast þó tvær og hálf milljón manns búa á borgarsvæðinu. Borgin dregur nafn sitt af virki sem stóð á ármótum þar sem núna er fagur gosbrunnur. Pittsburgh er stundum kölluð stálborgin vegna þess lykilhlutverks sem hún gegndi í bandarískum stáliðnaði langt fram eftir síðustu öld. En svo tók að fjara undan þeim iðnaði og borgarbúar neyddust til að skapa sér ný tækifæri. Og þar sem áður stóðu stáliðjuver í röðum meðfram árbökkunum eru núna komnir skemmtilegir göngu- og hjólastígar. En Pittsburgh er einnig nefnd borg brúanna og það ekki af ástæðulausu. Sagt er að 446 brýr séu yfir árnar á borgarsvæðinu. Á þessum ármótum stóð virkið Pittsburgh sem borgin er kennd við.Sigurður Pétur Jóhannsson Andrew Carnegie lék stórt hlutverk í vexti borgarinnar en hann hóf þar stálframleiðslu árið 1875 og varð einn ríkasti maður sögunnar. Síðar gaf hann megnið af auði sínum til velferðarmála og bera mörg söfn og stofnanir nafn hans. Mörgum finnst gaman að ramba innan um skýjakljúfana og njóta um leið götulífsins. Gulf Tower var lengi hæsta byggingin og háskólabyggingin, Dómkirkja lærdómsins, sú næst hæsta. Í nýrri byggingum má sjá athyglisverðan arkitektúr eins og fjörutíu hæða glerbyggingu sem með húsunum í kring myndar einskonar glerkastalaþyrpingu. Eitt líflegasta hverfið kallast The Strip, eða Ræman, og þó að það sé í göngufæri við miðborgina er rétt eins og við séum komin í smábæ enda húsin þar lágreist. Þar má finna útimarkaði, smáverslanir og sölubása, veitingastaði með lifandi tónlist, og ef fólk vill hvíla sig frá göturöltinu má setjast inn á bjórgarð og hlusta á rokkhljómsveit. Kafbáturinn USS Requin er núna hluti af Carnegie-tæknisafninu. Pittsburgh er sú hafnarborg Bandaríkjanna sem á einna lengstu siglingaleið frá sjó.Egill Aðalsteinsson Árnar þrjár sem mætast í borginni urðu mikilvæg flutningaleið í upphafi iðnbyltingarinnar. Og enn má sjá flutningapramma sigla á ánum en einnig farþega- og skemmtibáta. Ofan af hæðunum fæst frábært útsýni yfir miðborgina og háhýsin. Á tveimur stöðum ganga kláfferjur um snarbratta hlíðina sem skemmtilegt er að taka en þær eiga sér 150 ára sögu í borginni og voru smíðaðar til að auðvelda stálverkamönnum að komast til og frá vinnu. Siglingaleiðin að borginni liggur alla leið frá Mexíkó flóa um Mississippi-fljótið. Kafbátur úr síðari heimsstyrjöld er núna hluti eins af fjórum söfnum borgarinnar sem kennd eru við Andrew Carnegie. Á öðru safni má fræðast um risaeðlurnar og fylgjast með vísindamönnum rannsaka steingervinga. Hér má sjá steingerðar beinagrindur af stærstu risaeðlunum, og kannski eins gott að maður var ekki uppi á sama tíma og grameðlan. Eins gott að þessi kjötæta er ekki uppi á okkar dögum.KMU Þar má kynnast byggingarlist fornþjóða og raunar hægt að gleyma sér klukkustundum saman við að ramba um sýningarsali. Og alls ekki sleppa steinasafninu. Þar taka gestir andköf yfir fegurð og fjölbreytni steinaríkisins, sjá má sýnishorn úr öllum heimsálfum, hér er gull, eins og það kemur fyrir í náttúrunni, gimsteinar og allskyns eðalsteinar og meira að segja silfurberg kennt við Ísland. Í Pittsburgh er safn um popplistamanninn Andy Warhol sem fæddist og ólst upp í borginni. Sjálfur mótaðist hann af auglýsingageiranum og mörg verka hans tengjast vörumerkjum, eins og Campbells-súpudósirnar. Myndasyrpurnar af Marlyn Monroe eru einnig með þekktustu verka hans. Leikvangur Pittsburgh Steelers.Sigurður Pétur Jóhannsson Borgarbúar eru sérstaklega montnir af einu sigursælasta liði ameríska fótboltans, Pittsburgh Steelers. Leikvangur þess er í hjarta borgarinnar og tekur 70 þúsund áhorfendur. Skammt frá er völlur hafnaboltaliðsins þeirra, Píratanna, sem rúmar 40 þúsund áhorfendur. Í einum besta stað borgarinnar er einnig völlur fyrir þá tegund fótbolta sem Evrópubúar þekkja betur. Sá völlur tekur reyndar bara fimm þúsund manns en ráðmenn knattspyrnuliðsins ætla að stækka hann svo hann rúmi fimmtán þúsund áhorfendur, þeir halda að vinsældir evrópska boltans séu að snaraukast. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair.Egill Aðalsteinsson „Mér finnst þetta bara alveg geggjuð borg. Ég verð að segja það alveg eins og það er,“ sagði Tómas Ingason hjá Icelandair eftir þriggja daga skoðunarferð. „Þetta er bara yndisleg borg. Það er hægt að labba út um allt hérna. Hér er mikil menning, miklar íþróttir. Mikil saga í borginni. Ég var búinn að heyra mikið af borginni en ég verð að segja að mér finnst þetta miklu betra en ég þorði að vona,“ sagði Tómas.
Bandaríkin Ferðalög Ísland í dag Icelandair Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. 17. maí 2024 06:01 Mest lesið Hverjum var boðið á Bessastaði og hverjum ekki? Lífið Plötuverslun sniðgengur Björk og tekur tónlist hennar úr hillum Lífið Snorri Másson leggi hornin á hilluna Lífið Eyjólfur og Suzanne eignuðust stúlku Lífið Móðguð fyrir hönd ferðaþjónustunnar Lífið Sonurinn kominn með nafn Lífið Skotin ganga á víxl um „eitraðan mömmuhóp“ Lífið Smurði kúk um allt stofugólfið þar til hann kafnaði úti í horni Lífið Allt að 450 þúsund bíógestir á einu ári Lífið Vilhjálmur Bergsson er látinn Menning Fleiri fréttir Þórunn Antonía frumsýnir nýtt útlit Eyjólfur og Suzanne eignuðust stúlku Móðguð fyrir hönd ferðaþjónustunnar Skotin ganga á víxl um „eitraðan mömmuhóp“ Snorri Másson leggi hornin á hilluna Tónlistarpar fékk draumaprins í síðbúna jólagjöf Sonurinn kominn með nafn Plötuverslun sniðgengur Björk og tekur tónlist hennar úr hillum Hverjum var boðið á Bessastaði og hverjum ekki? Allt að 450 þúsund bíógestir á einu ári Gugga fer yfir eineltið, frægðina og eftirpartýið með Drake Smurði kúk um allt stofugólfið þar til hann kafnaði úti í horni Hvað vildu Íslendingar vita á árinu 2025? Olli sjálfum sér vonbrigðum í sturtunni Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Kallar Sóla klónabarnið sitt Mótmælir söfnuninni: „Ég myndi frekar stinga byssu upp í rassgatið á mér“ Uppáhaldsatriðin að mati höfunda Skaupsins Golfkúlan hafnaði í höfði forsætisráðherra Barnabarn Íþróttaálfsins á leiðinni Íslenski Johnny Cash á rúntinum með Bítinu Scary Movie-stjarna látin Óútskýrð ráðgáta í Havana endurvakti fjandskap Kúbu og Bandaríkjanna Víkingar fengu son í jólagjöf Fannst látinn á fjöllum degi eftir afmælisdaginn Stjörnulífið: „Ekkert nýársheit í ár því það sem ég er að gera virkar greinilega“ „Á bak við fíkn er alltaf áfallasaga“ Nyrsta barn ársins fæddist fyrsta dag ársins Kraftaverkaaðgerð batt enda á fimm ár af sársauka Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Sjá meira
Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. 17. maí 2024 06:01