Halla valdi drapplitað fyrir þingsetninguna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. september 2024 14:22 Halla Tómasdóttir klæddist jakka frá Hjá Hrafnhildi við þingsetningu. Vísir/Vilhelm Halla Tómasdóttir forseti Íslands setti Alþingi í fyrsta sinn í dag. Mikil tilhlökkun ríkir gjarnan yfir klæðaburði embættismanna á þessum degi og valdi Halla að versla við Frú Hrafnhildi fyrir tilefnið.
Halla var klædd í drapplitaðan jakka frá merkinu ROFA úr versluninni Hjá Hrafnhildi og buxur í sömu litapallettu með gulan silkiklút við. Halla Tómasdóttir forseti og séra Guðrún Karls Helgudóttir biskup við þingsetningu.Vísir/Vilhelm Í dag er einmitt hinn svokallaði guli dagur þar sem fólk er hvatt til þess að klæðast gulu til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju en 10. september er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Halla er greinilega mjög hrifin af Hrafnhildi en hún var dugleg að klæðast fatnaði úr versluninni í kosningabaráttu sinni. Samkvæmt heimasíðu Hrafnhildar kostar jakkinn 39.980 krónur. Fyrir innsetningarathöfnina klæddist Halla þó eftirminnilega sérsaumuðum hvítum kjól eftir Björgu Ingadóttur.
Tíska og hönnun Alþingi Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Reykjavík Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira